- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
58

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

58

J arðabygging

verða {>að alls 570 vættir af srajöri.1) Arið 17á9 segir

Matthias Jochumsson Vagel að geymt hafi verið súrt smjör

í Skálholti fvrir mörg þúsund dali og var þvi hnoðað

samau i afarstóra kös;2) smjörhlaðar hafa þvi tiðkast á

t

biskupssetrunum fram á 18. öld. Utlendingum þótti þetta
kvnleg meðferð á smjöri og gera úr þvi alskonar ýkjur.
Blefken (1 f»07) segir. að Islendingar troði smjörinu alstaðar
i liorn og smugur i hibýlum sinum til uppfyllingar. en
Daniel Streyc (1014) fer þó réttar með. er hann segir, að
Islendingar. vegna ilátaleysis. hlaði smjörtöflunum upp i
húshorn.

Kvadir. Auk landskuldar og kúgildaleigna hafa fyrrum

vms gjöld og störf sumstaðar verið lögð á leiguliða; þessar

kvaðir skuldbundu þeir sig til að inna af hendi, er þeir

leigðu jarðirnar. Pó kvaðirnar væru mjög þungbærar i

sumum sýslum við sævarsiðuna, urðu þær aldrei svipaðar

þvi sem samtimis var i öðrum löndum og aldrei var inn-

leidd hér á landi sú bændakúgun, sem þrælkaði nærri alla

alþýðustótt Danmerkur í margar aldir. Hinar svonefndu

kvaðir eru nú fyrir löngu úr sögunni. þær tiðkuðust aðeins

að mun á suðvesturhluta landsins. í Gullbringusýslu og

Mosfellssveit og á Snæfellsnesi og i nokkrum öðrum sjávar-

plássum sunnanlands, en anuars voru þvinær allir leigu-

liðar i öðrum sýslum lausir við þær; það var helzt á

klaustra-jörðum hingað og þangað að dálitið brvddi á

kvöðum, og umboðsmennirnir héldu i þær sér til hagnaðar

i lengstu lög. I fornöld verða menn ekki varir við neinar

fastar kvaðir, þó leiguliðar stundum yrðu að vera allauð-

/

sveipir við landsdrotna sina og starfa ýmislegt fyrir þá. A
Sturlunga-öldinni voru alloft lagðar sauða-kvaðir og aðrar
kvaðir á bændur, en það voru goðorðsmennirnir, sem það
gerðu; það voru nokkurskonar skattar til valdhafanna, en
þeir voru ekki bundnir við jarðaábúð, komu jafnt niður á
sjálfseignarbændum sem leiguliðum. Hinar eiginlegu á-

>) Dipl. isl. IV, bls. 520.

2) Landfræðissaga II. bls."238.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0076.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free