- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
59

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Traðir

59

búðarkvaðir virðast fyrst koraa upp á klaustra og
stólsgóss-um, liklega að erlendum sið, klerkar höfðu kynst kvöðum
leiguliða víða i útlöndum og liefir því þótt tilhlýðilegt að
iunleiða þær hér á landi, þegar þvi varð við komið; auk
þess tók íslenzk alþýða framan af mjög vel öllum beiðslum
og álögum heilagrar kirkju og samþykti. að því er virðist
raótmælalítið, heytolla, lýsitolla, ostatolla. sauðatolla og
margskonar aðra tolla, sem kirkjan lagði á bændur, en
lengi frameftir mótmæltu menn harðlega öllum
stjórnar-álögum; kirkjan fékk líka. sem kunnugt er, urmul af
itök-um i jörðum um alt lancl.

Einna fyrst virðast fóðurkvaðir liafa verið lagðar á
leiguliða, jarðir bygðar með þeim skilyrðura. að landseti
auk landskuldar og kúgildaleigu fóðraði lömb, nautgripi
eða hesta fyrir jarðeiganda. fá var farið að krefja
land-seta ura dagsláttu eða dagsverk. mannslán, hestlán og þvi
um líkt, en fastar urðu kvaðir þessar óvíða nema á
Suður-landi. J lögum um bygging konungsjarða 2. júlí 1294 er
ekki getið um neinar kvaðir, en þó er sleginn varnagli við
ágangi umboðsmanna.1) I skrá um leigumála á jörðum
Yiðeyjarklausturs 1318 bryddir þegar á kvöðum.3) Bóndinn
a Korpólfsstöðum á að geyma naut og hross staðarins og
fóðra 3 vetrunga, á Osi er 3 vetrunga fóður, i Pormóðsdal
lá hrossa beit o. s. frv. 1397 áskilur Kirkjubæjarklaustur
sér allmiki] kúa- og nautafóður lijá ýmsum landsetum, og
bóndinn á Brekku i Dyrhólahreppi á að gjalda eftir jörðina
sjö hundruð skreiðar og tíu aura vöru »ok fara með skip
sraðarins. ok kosta þat at ólluc.3) Róðrarkvaðir liafa verið
farnar að komast á um 1400 bæði á kirkjujörðum og
bæudajörðum hingað og þaiigað og eru orðnar algengar í

r

sjóplássum um 1500. A 15. öld hafa biskupar sett grúa
af fóðurkvöðum á stólsjarðir, sem sjá má af skrá ura
kú-gildi og eldi á jörðum Hólastaðar 1449.4) Róðrarkvaðir

r) Dipl. isl. II, bls. 288-289.

*) Dipl. isl. II, bls. 377.

s) Dipl. isl. IV, bls. 239.

*) Dipl, isl. V, bls. 41-44.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0077.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free