- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
72

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

72

Jarðaverit

liafa getað staðið straum af ilestum tilkostnaði við
þjóðar-búið- Til fróðleiks og athugunar set eg hér kafla úr grein
eftir Tótnas Sæmundsson um þjóðjarðasölu: »Tvísýni er á
því, hvað landinu sé það holt að verið er að selja
þjóð-jarðirnar ár frá ári, þvi þó það sé borið fyrir, að þá fari
jarðyrkjunni mest fram, er bændur eigi jarðirnar sjálfir,
er þeir búa á, þá er fyrst að reynslan ekki staðfestir það
nærri alstaðar. þvi bæði er það, að þar sem náttúran er
með jarðyrkjunni, og menningin er komin, þar miðar henni
áfram. og lagfæringu jarða, liver sem þær á; enda gefur
að skilja, að ekki er unnið fyrir gig. þó ekki eigi þeir
jarðirnar sjálfir, sem á þeim búa, þar sem menn fá að sitja
á jörðunum og brúka, sem þeir ættu æfilangt. og stundum
niðjar þeirra eftir þá, og leugra komast menn ekki, þó þeir
sjálfir ættu þær. Hvergi er jarðyrkja betur stunduð en á
Englandi.1) en fæstir bændur búa þar á sjálfs sins eign.
Það er þessu næst, að menn mega ekki ætla, að bændur
búi allir á sjálfs sins eignum fyrir það. þó þjóðareignirnar
væru seldar, því þó jarðir verði fyrir þá sök fleiri
bænda-eignir, er ekki þar með sýnt, að bændur verði fleiri
jarð-eigendur, þvi það, sem selt er, lendir eius oft lijá þeim,
sem rikastir eru og mestar eiga jarðirnar undir, og einmitt
þeir, sem búa á eignum slikra manna, hafa oft verstu
kjörin, og miklu verri en meðan konunginum var eignuð
jörðin, og þar verður jarðyrkjunni hvað minst ágengt.
Jarðyrkjunni eða landinu er því einsog af þessu má sjá
ekki mjög stór hagur í því, að þjóðeignirnar séu seldar,
þar sem ekki er fleira eftir af þeim en nú er orðið i landi
hér; en ekki mun hagurinn reynast meiri, þegar litið er til
stiptananna, sem eiga þær, því einsog það er holt fyrir
hvern einstakan mann, eftir ásigkomulagi lands vors, að
hafa landaurana til umráða, sem mest á að að búa, svo er og
eins stjórnin miklu verr farin og ófrjálsari, þegar hún er
búin að svifta sig allri fastri eign og öllum umráðum
land-auranna, ef þeir kæmu timarnir að til slíks þyrfti að grípa

’) Svo var ]>á er þetta var ritað.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0090.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free