- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
207

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Sel

207

hver sem á hundrað eða tleiri sauði sendi tvo menn í
göngur*:.1)

Sel. Sumarbeit fyrir búsmala til dala, heiða og fjalla

var á fyrri öldum mikið meir notuð en nú, menn liöfðu

snemma tekið eftir þvi, að gróðrarsæl fjallalönd og dala-

lönd voru góð undir bú og vildu eigi iþ}Tngja heimahögum

með of mikilli beit á sumrum. Pað sá Skallagrimur fljótt,

að fó þroskaðist vel til fjalla á sumrum. »Hann fann mik-

inn mun á, at þat fé varð betra ok feitara, er á heiðum

gekk, svá þat, at sauðfé lielzt á vetrum í fjalldölum, þótt

ei verði ofan rekit. Siðan lét Skallagrimur gera bæ uppi

við fjallit ok átti þar bú. Lét þar varðveita sauðfé sitt«.2)

Fornmenn munu því frá landnámstið hafa haft búpening

sinn i seljum á sumrum, enda voru þeir vanir þvi frá

Noregi, og þar eru selstöður enn algengar, einsog lika i

Alpafjöllum. Selin voru í fornöld kölluð sel einsog nú eða

þá setr eða sætr; sætr eru þau kölluð i Jónsbók og hefir

það nafn enn sumstaðar haldist í staðanöfnum, t. d. Sætra-

fjall og Sætraklif við Reykjarfjörð á Ströndum (Kúvíkur).

Selin voru stundum kölluð sumarhús og sjálfir bæirnir eru

t

oft nefndir vetrarhús i sögunum. I Landnámu er sagt, að

Björn austræni hafi haft sel frá Bjarnarhöfn, og Steinólfur

lági, er bygði Saurbæ vestra, kom frá seli við 7da mann,

er Pó rarinn krókr réðist á hann.3) I Hallfreðarsögu er get-

ið um mörg sel við Langadal og Laxárdal í Húnavatns-

svslu,4) og liafa þau verið skamt frá bæjum. Eins hefir sel-

ið í Sælingsdal verið nærri bæjum, sem getið er í Laxdælu,

þar var engi hjá selinu, sem húskarlar Bolla unnu, og þar

var mannmargt, hefir þar verið reglulegur sumarbústaður

fyrir flest heimilisfólkið Selin voru þar tvö, svefnsel og

búr. Þa r í selinu var Bolli Porleiksson veginn, sem
kunn-t

ugt er. I sömu sögu er getið um sel frá Vatnshorni, i

’) Lovsainling ior Island I, bls. 394.

*) Egilssaga, Rvík 1892, 29. kap., bls. 7-5.

3) Landnáma (1891) bls. 72, 95.

4) Hallfreðarsaga (1901) kap. 9, bls, 33-35.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0225.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free