- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
210

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

210

Sel

færri og sauðaeignin stærri. Kirkjur eiga um alt land fjölda
af ítökum til selfara. en þau eru nú notuð sumpart sem
af-réttir, sumpart sem beimahagar, sumpart leigð öðrum
ein-stökum mönnum og hreppum.

A 18. öld voru selstöður mjög farnar að leggjast niður,.

svo stjórnin, 1754, fann sér skylt að skipa bændum að hafa

búfé sitt á seljum og geldfé á afréttum frá 9. til 21. viku

sumars, til þess að hlifa heimahögum og slægjum,1) en því

mun alls ekki hafa verið hlýtt frekar en öðrum fyrirskipun-

um stjórnarinnar í þá daga. Eftir fyrirmælum ýmsra is-

lenzkra framfaramanna gaf stjórnin á 18. öld út ótal boð-

orð og lagareglur um alt mögulegt og ómögulegt, er bú-

skap snerti, en þar var aðeins sá hængur á, að engu var

hlýtt, ekkert varð úr neinu, þegar til framkvæmdanna kom,

bó oft væri hótað afarkostum. í>ó segir Eggert Olafsson,.

að selfarir hafi í hans tíð enn verið algengar i Borgarfirði,

en viðast annarstaðar lagðar niður. Voru selhúsin vanalega

þrjú, iveruhús eða svefnsel, eldhús og búr, og mun sá

húsafjöldi hafa haldist siðan i fornöld, þó sum selin bæði

fyrr og siðar hafi verið fátæklegri. A seljunum voru kýr

og ær, þar var smali og fullorðin stúlka með telpu til að-

stoðar, þær mjólkuðu, strokkuðu, gjörðu smjör og osta o.

s. frv.2) N. Mohr kom 1780 i sel nálægt Skagaströnd, borð-

aði þar grasagraut og var fenginn fjöðurstafur til þess hann

gæti drukkið úr mjólkurtrogunum.8) Mohr sá á ferð sinni

um Norðurland og Vesturland aðeins þrjú sel, á Spákonu-

felli, við Kaldrananes í Strandasýslu og frá Reykjahlið við

Mývatn. Allir búmenn 18. aldar hvetja bæudur til að taka

t

upp aftur selstöður, en þó árangurslaust. Olafur Stephensen
vill liafa búpening i seljum frá Jónsmessu til rétta, »eru
þá heimahagar i friði fyrir ágangi hans. óbitnir, ótroðniiv

Lovs. f. ísland III, bls. 182, 191.

2) Eggert Olafssons Reise bls. 155, 178. Sbr. Olavius: Oekon. Rejse
bls. 247—248.

3) N. Mohr: Forseg til en islandsk Naturhistorie. Kbhavn 1786r

bls. 10, 349-350.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0228.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free