- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
278

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

278

Sauðfénaður.

nautgripii’ verða eins og annar fénaður veikir i eldgosum
af ösku og ólyfjan. sem í grasið kemur, og er sá sjúkdómur
kallaður »gaddur«, ofvöxtur kemur þá i tennur kvikfénaðar.
og auk þess skemmist tannhold og innyfli á ýmsan hátt.1)

IV. Sauðfénaöur.

1. Saudfjáreign Islendinga á fyrri öldum.

Landnámsmenn fluttu sauðfé með sér á skipum sínum
ásamt nautpeningi; hefur allur fjöldinn af hinum aðkomnu
sauðkindum eflaust komið frá Noregi, en þó liklega nokkuð af
sauðfénaði frá hinum brezku eyjum með þeim
landnámsmönn-um, sem komu vestan um haf. Sauðfjárrækt hefir þegar i
önd-verðu verið þýðingarmikil atvinnugrein fyrir hina fyrstu
land-nema. Pað var hægast að koma upp fénu, beit var þáóþrjótandi.
og svo mátti, ef áþurftiaðhalda, hleypa kvikfénu i skógana.sem
þá voru miklu viðáttumeiri en síðar. Dæmi Hrafna-Flóka
og Helga magra sýna þó. að ekki var þetta einhlitt, menn
urðu líka að afla heyjanna, þvi árferði var þá misjafnt einsog
siðar. Snemma urðu menn þess varir, að beitin var mis-

Jón Hjaltalín: Lækningabók. um þá helztu kvilla á kvikfénaði,
samantekin fyrir Islendinga og löguð eftir þörfum þeirra. Kmhöfn
1837. XII + 128 bls. 8°. Magnús Stephensen: Um lækningaráð fyrir
búfénað. (Klausturpóstur IX, 1826, bls. 119—139). Sami: Um kúa- og
kálfadauða (Klausturpóstur I, bls. 135—144; II, bls. 88-91, 116-126).
Sami: Kvægets almindeligste Sygdomme i Island (Vet. Selsk. Skr. I,
bls. 243—252). Snorri Jónsson: Husdyr og Husdj’rs^’gdomme i Island
(Tidsskritt for Veterinærer. Kbhavn. 2. Række, IX. Bind 1879, bls,
137—178). Ráð við doðasótt í kúm (Almanak þjóðvinafjelagsins 1876,
bls. 55—56). Uermann Jónasson: Doði á kúm (ísafold XII, 1885, bls.
187). Guðmundur Einarsson: Nautpeningsrækt. Rvík 1859, bls. 59—66.
Stefán Sigfússon: Doðasótt eða magnleysissótt í nautgripum
(Bún-aðarrit VII, b!s. 159 — 168). Magnús Einarsson: Ráðaþáttur um
sjúk-dóma búpenings (Freyr I, bls. 14 — 16, 75-77; IV, bls. 105—108).
Sigurður Einarsson: Alidýrasjúkdómar Stuttágrip. Akureyri 1915 — 16.
104 bls. Prentað. neðanmáls í »íslendiugi«. 1, —2. árg. Akureyri
1915-1916.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0296.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free