Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
Sauðfó á fyrri öldum
291
voru hættir að standa yfir beitarfé o. s. frv.1), þó var féð
framan af öldinni ennþá vel hirt allvíða á bóndabæjum eins
og sjá má af frásögu Jóns Steingrimssonar prófasts um
ung-dómsár hans í Skagafirði (1735—40). Þegar hann var 7
ára, vandi faðir hans hann við að gefa lömbum og brynna
þeim og lét hann siðar ganga með sór til fjár, halda þvi
til haga, brjóta ofan af fyrir þvi og moka og var honum
til þess smíðuð litil göngu- og var-reka. »Þá eins)?nt veður
var. var eg sendur« segir síra Jón »að hleypa fénu út og
reka það á hagann. Pá albjart var, átti féð að vera
þang-að komið, en ei fyrri en um sólaruppkomu, ef hrímfrost
var; skyldi eg tvístra því vel sundur i beitarplássinu, að
ei legðist eða stæði saman.«8)
A seinni hluta 18 aldar gerðu bæði einstakir
embætt-ismenn og stjórnin miklar tilraunir til að bæta sauðfjárrækt
Islendinga og kenna bændum betri fjárhirðingu. Hvorki
lagaboðin nó upphvatniugar einstöku ágætismanna höfðu
þó veruleg áhrif á almenning á þeirri öld, menn voru
orðn-ir niðurbældir og volaðir af langvarandi harðindum og
verzlunarólagi, og svo bættist hver hörmungin ofan á aðra,
hart árferði með löngum köflum og svo fjárkláðinn og að
lokum klykti út með móðuharðindunum. Þó varð þessi
framfaraviðleitni síðar að töluverðum notum, þvi rit 18.
ald-ar munu hafa átt góðan þátt í viðreisn búskaparins á fyrri
hluta 19. aldar.
Mattias Jockimsen Yagel hafði þegar 1737 stungið upp
á að stofnuð væri ullarverksmiðja á íslandi, að innleidd
væri ensk fjárrækt og fjárkynið bætt með ensku fé.s) Um
miðja öldina gerði stjórnin tilraun til að koma á kynbótum
á islenzku fó, einkum til þess að bæta ullina. Pá var
sænsk-ur fjárræktarmaður, F. W. Hastfer barún, sendur til Islands
1756 með 10 enska hrúta, voru keyptar til þeirra 100 is-
*) Sbr. N. Mohr: Forsög til en islandsk Naturhistorie. Kbhavn
1786, bls. 9-10.
*) Æfisaga Jóns prófasts Steingrímssonar. Rvík 1913, bls. 14—15.
3) Deo. regi, patriæ. Soröe 1768. bls. 167. Landfræðissaga II,
bls. 236—241.
19*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>