Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
322
Sauðfjárrækt
hrúta, og skemdu þannig fyrir sjálfum sér, svo stjórnin fann
-ástæðu til þess með konuugsbréfi 2. marz 1776 að banna
brúkun lambhrúta; þeir kvað þó enn vera notaðir i
Gull-bringusýslu.1) Yanalegast munu nú hrútar notaðir á öðrum
og þriðja vetri og á 4 vetri, en þá hvað mega nota þá. til
þess þeir eru 5—8 vetra eða jafnvel lengur, ef vel er með
þá farið, en margir hafa ótrú á að nota hrútana lengur en
tvö ár og sumir telja hrúta eldri en þrevetra ónýta Eftir
Búalögum (bls. 143, 148) skal ætla 15 ær undir hrútlamb á
vetur, 30 undir veturgamlan og 40 undir tvævetran. Hrút
skal láta til roskins fjár Mariumessu á jólaföstu, en til
gimbra áttadag. Gjöra skal fyrir veturgamlan hrút að
Simonsmessu, fyrir tvævetran á veturnóttum, fyrir hrútlamb
Marteinsmessu. Pað er nú talið að sterkur og hraustur
þriggja vetra hrútur geti lembt 80—100 ær á vetri,2) og má
hleypa til hans 10 ám á dag með hæfilegu millibili. Sumir
íslenzkir hrútar eru ferhyrndir, stundum með bogin horn
stundum með bein horn,3) en ekki þ}’kja þeir vænni en
aðrir hrútar til undaneldis, nema siður sé.4)
Pað kemur fyrir, að hrútar eru kollóttir, á 18. öld
get-ur Olafur Stephensen um kollótta hrúta og eins Magnús
Stephensen í byrjun 19. aldar. Magnús Ketilsson segir að
menn hafi alment litið álit á kollóttum hrútum, en segir
að sænskir búfræðingar telji þá bezta til undaneldis, mikill
kraptur tapist við vöxt hornanna og að ærnar fæði hægast
eftir kollótta hrúta.5)
Sauöburður. Yiðast mun það siður að láta ær bera
l) Búnaðarrit XXVIII, bls. 128. Magnús Stepbensen segir (Vet.
Selsk. Skr. I, bls. 191) að undan úrvals lanibbrútum, sem að eins eru
notaðir til 15 ásauða, fáist stór og góð lömb með ágætlega fínni ull.
’) P. St. Fjármaðurinn bls. 39. Jón H. forbergsson segir
(Kyn-bætur sauðfjár bls. 101) að lambhrút megi nota til 10—15 áa.
vetur-gömlum má ætla 25—35 ær, tvævetrum 40—50, en eftir það má ætla
hrútum 50—60 ær, og sumir þola meiri brúkun.
s) Myndir aí ferhyrndum hrút i Dýravini VII. bls. 7; XV, bls. 73
Aðrir hrútar s. st. XI, bls. 59; XIII, bls. 56; XVI, bls. 67.
«) Sbr. Búnaðarrit XXI, bls. 92. .
5) Undirvísun um þá íslenzku sauðfjárhirðing. Hrappsej^ 1778
bls. 32.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>