- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
355

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Heyásetning

355

þá gengr flestra mauna á milli, fyrri hreppsmönnum en

öðrum, þeim þó at fullar vörzlur leggi á móti.«1) Eftir tí-

undarlögum 1096 átti að tiunda »heyja-afgang ef fornari

eru en veturgömul.«s) í Búalögum, sem má skoða sem

nokkurskonar safn af verðlagsskrám, sveitasamþyktum og

búnaðarreglum, er nákvæmlega tekið fram, hvernig setja

skuli pening á vetur. Ná margar þær búnaðarreglur, sem

þar er skráðar, eflaust upp á 14. og 15. öld, ef ekki lengur

fram. Kúnni var ætlaður málfaðmur að haustnóttum. frá

góubyrjun var tveimur kúm ætlaður málfaðmur, væri önnur

borin hin óborin; frá þrettánda dag jóla skyldú þrjár kýr

vera um málfaðm, ein af þeim borin. Tiu lömbum var ætl-

að eitt kvrfóður. Einn fjórðungsvöndull var ætlaður hverj-

um 8 ám á þorra, 6 á góu, 4 á einmánuði o. s. frv.
t

A seinni tímum hefir um fátt verið jafnmikið skrafað
og skrifað eins og heyásetning búpenings. en þó er enn
langt frá því að þjóðin só búin að búa tryggilega um
vel-ferð sina á þessu svæði. Sökum þess að það stundum
hepn-ast fyrir einstaka manni að koma upp mörgu fó og lélegu
með litlum kostnaði þegar vel árar, þá hættir mörgum við
að tefla á tvær hættur og hugsa lítt um það, að af
forsjár-leysi þeirra getur mikið ilt hlotist, kvalir og dauði fyrir
margar lifandi skepnur, sem maðurinn á að annast, og ef
til vill hungur og vandræði fyrir sjálfa þá og marga aðra.
Menn taka sjaldan tillit til hins gamla orðtækis, að
»haust-skurður er hollari en horskurður á vori«, og hefir oft orðið
hált á þvi. Ólafur Stephensen setur þessar reglur um
haust-skurð: »Misfalli heyskapur, þá er næst fyrir þann, sem
margt sauðfó á, að farga i tíma megninu af geldum sauðum
sinum og gamalám öllum; sauðir eiga að slátrast viku fyrir
vetur, enda má það og bíða veturnótta ef haust er gott;
gamalær með jólaföstu og undir jól, þvi svo lengi fitna þær;
ám og lömbum á fóður að ætla. Yerður af þessu fljót og
góð viðkoma i stað hins er lógað var. Fásinna mikil er

Jónsbók O. H. bls. 139. íetta beynáms-leyfi var aftekið með
konungsbréfi 19. sept. 1806. Lovs. f. Isl. VII, bls. 89.

2) Dipl. isl. I, bls. 107, 116.

23*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0373.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free