- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
388

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

36S

386 Sauðfjárrækt

skaða.1) Par sem getið er um fénaðarsjúkdóma i fornum
ritum, er lýsingin altaf svo ónákvæm, að eigi er hægt að
vita við hvað er átt. A dögum Guðmundar biskups
Ara-sonar (1203 —1237) er þess getið, að »mikill bardagi féll yfir
einn búgarð norðanlands með þat kjm, at gangandi fé datt
niðr i bráðum dauða«. Guðmundur góði stöðvaði sýkina
með vigðu vatni, bænum og liringingum og yfirleitt
hepn-uðust honum vel dýralækningar. Er sagt, að þegar fénaður
var »svá leiddr í dauða, at rétti frá sér hvern fót, spratt
kykvandið upp alheilt ok tók á rás, siðan Guðmundr gekk
til með bæn sinni ok vígðu vatni«.2) A kaþólskum timum
höfðu menn eigi önnur ráð gegn fénaðarsjúkdómum en
fyrirbænir og vigt vatn, á 17. öld var alt slikt kent
gjörn-ingum. A árunum 1661 — 63 gekk fyrir norðan óvanaleg
blinda á sauðfó og kom hún lika á menn. Pessi blinda
gekk 1661 einkum i Húnavatnssýslu og varð að gefa fé hey
inni um hásumarið. Margir menn fyrir norðan, einkum
ungt fólk, fengu þá líka blindu þessa, urðu snjóhvit augun
og bólgin, rann svo af að viku eða hálfum mánuði og sá
þá betur en áður; 1663 varð vart við sjúkdóm þenna í
Borgarfirði einkum í Norðurárdal.3) Sira Gunnlaugur
3?or-steinsson segir i annál sinum svo frá sjúkleika þessum: »A
Skagaströnd kom 1662 blinda furðuleg á sauðfé, urðu bæði
augun hvit á þeim sauðum er hana fengu, og varð að skera
af, sást hún fyrst á Háfsstöðum, siðan á Höskuldsstöðum,
og færðist um bæi inn eftir ströndinni alt að Breiðavaði,
og þó ekki lengra fram; meir en 60 fjár á Höskuldsstöðum
fengu blinduna á öðru auga, og svo viðar, batnaði þvi
aft-ur, en hitt varð af að skera, sem fekk hana á bæði augun.
Grunaði suma þetta mundu gjört hafa franskir
galdrastrák-ar, þvi sumarið fyrir höfðu Strandamenn djarfir verið að
ná sér nokkru af hvalreitum þeirra; komu franskir nú aftur
þetta sumar að Ströndinni á land hjá Syðri Ey og vildu
gefa bónda þar, eða hverjum sem þiggja vildi, lamb franskt,

Th. Eogers: Six ceuturies of work and wages, 1906, bls. 71,81.

s) Biskupasögur II, bls. 35.

3) Annálar Póturs á Ballará. Hdrs. J. S. 235, 4°.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0406.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free