- Project Runeberg -  Lýsing Íslands / þriðja bindi /
398

(1908-1922) [MARC] [MARC] Author: Þorvaldur Thoroddsen
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

36S

386 Sauðfjárrækt

sérlegri ónáttúrus.1) Annar annáll lýsir kláðanum þannig:
»Svo var ásigkomulag þessarar fjárótimgunar, að
hrúður-þykni komu i júgrið eða koðrann og nárana, hljóp svo
skinnið saman í þykkva húð með stóru hrúðri um malirnar,
bógana, hrygginn og siðurnar, neri sig og reif af sór ullina
við steina og hæðir hvar gat, kvonaðist(!) siðan upp og
drapst síðan i hor og vesöld; jafnvel þó fyndist á þvi
nokk-ur holdtóra, var i þvi enginn mör; það út af drapst var
litt ætt, bláir blettir urðu á ketinu, hverja burt varð að
skera ef ætt skyldi vera, var bezt vel saltað«.2J Jón
Espólín lýsir fjársýkinni svo: »Sló út um sauðkindur á
herðakambi, kviði eða nárum, og var ei ætt það er drapst,
fyrir þvi skáru margir fó sitt heilbrigt fyrir ótta sakir; var
hún i því verri en önnur sóttarkyn, að þó ein sauðkind
sýndist lieil orðin, var hún jafnskjótt vfirfallin aftur, tvisvar
eða þrisvar á sama vetri eða vori. en á sumrum varð
held-ur hló á; kom hún þó aptur jafnskjótt sem haustaði eða
vetraði, og gekk svo hvert ár að öðru; varð eitt ár á milli
á sumum bæjum, svo peningur sýktist ei skaðlega, en
ann-að ár var hún þess þyngri; hafði hún ýmislegt atferli á
sauðfó, kom út á sumum með þurrum kláða, vosum og
skurfum, þurfti þá að klippa af ullina; en á öðrum kom
bleytusuddi um herðakambinn, og svo hrygg og siður, i
gegnum ullina, til þess er ullarkápan losnaði af hörundinu
i einu, og var kvikan eftir vot, var sú miklu verri og
hættu-legri en hin; á sumum kom mest í fæturnar með bjúg og
’bólgu, svo klaufir leysti af, var það verst viðureignar, og
varla ómaksvert að draga þær kindur við lif, er með þeim
hætti sýktust, þó etið gæti. Þá voru enn nokkrar, sem
bólgu fengu i höfuðið. og gróf úr augun, og fóllu af hor,
bólgnuðu varir og tunga, og þurfti þeim ei lif að ætla: má
af sliku sjá hver bágindi og skort á ull og öðru bjargræði
menn áttu þá við að vera.«3)

J) Annáll Magnúsar Péturssonar á Höskuldsstöðum. Hdrs. Bmf.
149, 4°.

») Breiðafjarðarannáll Hdrs. J. S. 39 Fol.

3) Arb. Esp. X, bls. 72.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 16:18:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/lysingisl/3/0416.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free