Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
388
VAIINAJUUT GUÐBKANDS BISKUPS.
f’engu eigi aptr mildað Stóradóm og af tekið líflátin; hann gjörir
sitt til að draga úr valdi lögréttunnar og rýra dómsvald hennar,
með því hann gengr framhjá henni og útvegar lagaboð um þau
efni, er hann þó í öðru orðinu játar, að sér komi ekki við, heldr
konúngi einum. En það bjó undir hjá Guðbrandi biskupi, að
hann vildi hafa ásamt konúngi alla lögsögu í þeim málum, er
biskupar áðr höfðu með erkibiskupi eðr páfa; hann fann til þess,
að hann hafði eigi það vald, er kaþólsku biskuparnir höfðu, og
að konúngr hafði dregið meira vald undir sig, en erkibiskupar
iiöfðu nokkru sinni tekið sér, en hann hugsaði sér þá að fara að
með lagi, og það var að tjá konúngi vilja sinn í einrúmi og án
þess hinir vissi af, er dæma skyJdu lög og landsrétt; en er þeir
vissu tiltektir hans, þá báru þeir sig einnig upp fyrir konúngi,
og fengu síðan lagaboð ofan í hin. það verðr eigi varið, að
Guðbrandr biskup hóf þessa lagadeilu, og það i þeim
löggjafar-málum, er hann alls eigi átti með, því það var búið að leggja
þau undir lögréttuna; það verðr heldr eigi varið, að hann ber
litla virðíngu fyrir landsréttindum og frelsi, því hann var bæði
harðráðr og eínráðr. Aðferð lians miðaði til þess, að koma á
algjörðu einveldi konúngs, en gjöra alþíngi að lítilfjörlegu
dóm-þíngi, er löggjafinn og hver sá annar, er setti sig í hans stað,
gat farið framhjá og skipað eptir viid sinni. En með því Jón
lögmaðr var harðr maðr í horn að taka, og alþýða manna unni
enn frelsi sínu hinu forna, þá varð minna úr en annars hefði
orðið. En þó hafa afieiðingarnar orðið allillar; iandsmenn fengu
eigi ieiðrétt Stóradóm, 24 manna dómrinn komst á, og margr
embættismaðr hefir síðan iátið sér það að kenníngu verða, að
fara að dæmum Guðbrands og hlaupa framlijá þínginu og í
konúng, og koma svo í opna skjöldu lögum vorum og landsrétti,
þar til búið var að eyða þeim eðr rugia svo með útlendum
lög-um, að enginn vissi að lokum upp né niðr.
Guðbrandr biskup getr um í þessum varnarritum sinum, að
hann liatí útvegað 10 konúngsbréf alls. Er liið fyrsta þeirra
dagsett 28. april 1571, en hið síðasta 6. desember 1593; því
að-gætanda er, að Guðbrandr biskup varð þess ollandi, að tilsk.
6. desbr. 1593 um yfirdóminn kom út, en alls eigi hins, að
til-skipun eðr kóngsbréf 27. marz 1562 eðr 1563 kom út, er hann
þó til nefnir. Ef vér þá tökum kóngsbréfið 6. desbr. 1593 mcð,
en sleppum hinu, þá verða kóngsbréfin jafnmörg, en rúm 22 ár
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>