- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
398

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

398

VARNARRIT GUÐBRANDS BISIiUPS.

arið eptir kom hann út aptr, því hann sat í Bessastaða
sam-þykkt þá um sumarið; fékk þá Knútr Steinsson lángt
konúngs-erindi um vorið, er hann skyldi reka á alþíngi þá um sumarið1.
fessar greinir eru í erindisbréfi hans: 1) Hann skyldi með ráði
biskupa og lögmanna, og helztu bænda á alþíngi, gjöra að álitum,
hvernig haga skyldi til með kapellur þær í landinu, er eigi var
framin messugjörð í, né hefði nægartekjur handa presti. — 2) Lýsir
konúngr þeim vilja sínum, að klerkar skuli eigi þurfa héðan af
að sækja mál sín á alþíngi, heldr skuli þeir gjöra það heima í
héraði. — 3) Til þess að auka tekjur klerka og kirkna skyldu allir
þeir, er búa á konúngsjörðum, stólseignum og klaustrajörðum,
greiða tíund sem aðrir bændr; skyldi þessari tíund skipt sem
annari tíund, í fjóra staði: til biskups, prests, kirkju og fátækra.
Um tíund í Vestmannaeyjum samþykkir konúngr, að eyjamenn
skuli greiða preststíund forngilda; en útróðraimcnn, er halda
bátum þar úti, skuli greiða undirgipt af bátum sínum, eins og
goldið væri af öðrum bátum; en undirgipt þessa gefr konúngr
presti og kirkju á eyjunum. — 4) Um skólahald, að biskupar og
skólameistarar skuli einkum veita fátækum únglíngum viðtöku:
kennslan skyldi vera góð og eins siðsemi, matr góði- og öl,
eldi-viðr nægr og klæðnaðr; reyndist kennari ónýtr, mátti reka hann
burt. — 5) Konúngr kveðst vilja, að biskupar veiti eigi öðrum
andlegt embætti en þeim, er svo væri vel að sér, að þeir gæti
messað almennilega og framið önnur prestsverk. En breyti biskup
af þessari skipan, þá skal höfuðsmaðr taka í taumana, en reka
skyldi þeir þá menn af brauðum, og kanokasetrum (klaustrunum),
er ólærðir eru. — 6) Konúngr vill, að sýslumaðr sé skyldr að ríða
með biskupi á yfirferðum hans, hver í sinni sýslu, og hafa gætr
á að farið sé eptir ordínanzíunni2.

’) Jón Espólín lætr Knút liafa siglt nm haustið 1554 og komið út aptr
um vorið 1555 (Arb. IV., 108). Er það liklega tekið eptir Birni á
Skarðsá, er lætr Knút koma út um sumarið 1555 með bréfið (Ann. I-,
206). En í Bessastaða samþykkt segir, að Iínúti hafi verið sent það
híngað til lands, og er það víst réttara. Annars skulum vér geta
þess hér, að í öllum Jjessum kafla höfum ver fylgt konúngsbréfum, cr
fmnast í Kirkjusögu Pinns, í Tilskipana-safni Magnúsar ICetilssonar og
í Lagasafni Islands.
a) Bréflð er dagsett 20. marz 1555; sjá Pinns Hist. Eccl. II., 329—331;
M. Ket. I., 357-362; Lagas. ísl. I., 69—71.

<

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0410.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free