- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
399

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

330 VARNARTtlT GUÐBRANDS BISKUPS.

399

Eigi bar Knútr Steinsson erindi þetta upp á alþíngi, sem þó
til var ætlazt, hvað sem því liefir valdið. Hann stefndi því fyrir
sig á Bessastöðum biskupum og lögmönnum báðum, og fjórum
prestum og öðrum (jóruiri Ieikmönnum, eðr 12 mönnum alls, 6
lærðum og 6 leikmönnum, svo það yrði réttr belmingadómr, og
tók síðan málið fyrir. J>eir sömdu þá samþykkt þá, er síðan er
kölluð Bessastaða-samþykkt. þess er getanda, að samþykkt þessi
er að orðalaginu til bæði samþykkt og uppástúnga, og því
var von, að þeir bæði um staðfesting konúngs, fyrst að þeir
annars bjuggu eigi dóm til úr erindisbréfinu. Með því nú að
inngángrinn og fyrsta greinin stendr í ritlíngi Guðbrands, en þó
eigi full og sumstaðar færð úr lagi, og liann vitnar til liennar á
öðrum stað, þá finnst oss réttast að taka hana hér, enda kemr
hún síðar við þetta mál.

„Yorum allrakærasta náðuga herra og stórmegtuga forsta,
konúng Kristjan Friðrekssvni, Danmerkr, Noregis, Yinda og Gotta
konúngi o. s. frv., heilsum yðr kærlega og auðmjúklega með
Guði vorum herra Jesú Kristó. Högborni forsti, stórmektugi
kóng, allranáðugasti herra! Virðist yðar náðar högmegtugheit að
vita, að vær eptirskrifaðir, yðar högmektugheita trúir pliktugir
þénarar og fátækir undirsátar: Marteinn Einarsson superintendens
Skálholts biskupsdæmis, Ólafr Hjaltason superintendens Hóla
hiskupsdæmis, Eggert Hannesson lögmann sunnan og austan á
islandi, Oddr Gottskálksson lögmann norðan og vestan á íslandi,
Bjöm Ólafsson, Jóu Bjarnason, prestar Skálholts biskupsdæmis,
Björn Gíslason, Jón Mattíasson, prestar Hóla biskupsdæmis, Páll
Vigfússon, Daði Guðmundsson, pormóðr Arason, Filippus
Run-ólfsson leikmenn: að vér fyrskrifaðir, eptir yðar náðar bréfi,
v’lja og skipan, sem yðar högmektugheit hefir skrifað híngað í
landið til yðar náðar umboðsmanns, Knúts Steinssonar, um nokkur
erindi og skipan, sem yðar náðar högmektugheit vill liafa
út-i’étt uppá nokkrar þær greinir, sem yðar náðar bréf inni heldr, þá
erum værfyri’skrifaðir menn sainan kommir uppá sankti Jóhannis dag
með yðar kóngl. maj. umboðsmanni Knút Steinssyni á Bessastöðum
á Alptanesi, og höfum innvirðulega skoðað og yfirlesið yðar náðar
högmektugheita bréf, hvert að oss virðist liið nytsamlegasta
gagn landsins innbyggjurum eptir landsins iélegheitum, sem er:

1) í fyrstu grein, það yðar kongl. maj. áhrærir um þær
hálfldrkjur og bænhús, eða um þær aðrar kirkjur, sem ekki eru

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0411.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free