- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
610

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

594

HIRÐSTJÓRA. ANNÁLL. 610

raargar — í fyrra hluta annálsin9 og fram undir siðaskiptin, en
þá stingur í slúf, því eptir þann tíma verða þær mjög svo fáar.
J>etta mega þó lesendurnir ekki kippa sér upp við. Fram undir
siðaskiptin er sá glundroði á um hirðstjórana, að opt og einatt
er ekki hægt að sjá, hver hafi verið hirðstjóri í það og það
skiptið, og einkanlega hefir það verið erfitt fyrir annálshöfundana
að finna þetta, sem ekki höfðu þau bóka-söfn og skjala við að styðjast,
sem menn hafa nú á dögum. fað er því engin furða, þó
ýmis-legt kunni að koma fyrir hjá þeim á þessu tímabili, sem er
miður rétt bermt. Eptir siðaskiptiu víkur þessu þar á móti alt
öðruvísi við, því trá þeim tíma hefir Hirðstjóra annáll einhverjar
beztu, áreiðanlegustu og greinilegustu frásagnir fram að færa um
hirðstjórana, svo að við það er svo sem ekkert að athuga. ]?að
hefði þá helzt átt að vera, að vitna til þeirra Finns biskups,
Jóns Espólíns og annara, sem farið hafa eptir Hirðstjóra annál
seinna og opt og tíðum notað hann orðrétt, en það hefði á hinn
bóginn orðið altof langt mál, og optast óþarft að minni skoðun. feir
sem vilja bera annálinn saman við þessi rit, munu, held eg,
komast fijótt að sama sem eg í þessu atriði. Eg hefi þess vegna
eingöngu getið þess neðan máls í þessum kafia, sem annaðhvort
var misritað eða þess háttar, ellegar skýrði eitthvað að mun
efnið sjálft.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0622.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free