- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Annad Bindi /
705

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HIRÐSTJÓRA ANNALL.

705

Skeggjastöðum, Brekku, Vörum, Meiðastöðum, ívarsbúsum,
Kot-húsum, Gufuskálum, Hólmi, Njarðvík, Hvassahrauni hálfu,
Ófriðarstöðum, Auðnukoti, Helgafelli liálfu, femey og Kópavogi
til byggingar ug umráða; fyrir Viðeyjarklausturs jarðir í
Borgar-fjarðar sýslu: Uppsali, Búrfell, Hauðsgil, Úifsstaði,
Iíleppjárns-reyki, Hurðarbak hálft, Litiakropp, Heggstaði, Hvítárvelli,
Braut-artungu, Hól, Snartarstaði, Hest, Brekku, Hálsa, Galtarholt,
Hrísakot, og Vælugerði í Árnesssýslu.

Anno 1563 sendi Páll hirðstjóri sinn þénara Andrés
Hof-mann vestur i Snóksdal strax um haustið, eptir dauða Daða
bónda Guðmundssonar, til að skrifa upp alla peninga, fasta og
lausa, svo sem fallna undir kónginn, fyrir hans barneign í
hór-dómi og frændsemisspellum. En Eggert Hannesson lögmaður
tók bróðurson sinn, Hannes Björnsson, þá 16 vetra gamlan,
dótturson Daða og einasta erfingja, í sitt forsvar, svo ei varð
af þeirri peningauppskript. Friðstilti Eggert hirðstjórann, og
bauð bonum 500 rd., til að frelsa og friðkaupa gózið. J>essu
tilboði tók Páll og lofaði Eggerti lögmanni skriflega á
Bessastöð-um, anno 1564 dag 10. júlí, að framfæra það fyrir kónginn
Friðrik, hvað bann og gjörði, því hann sigldi til Danmerkur á
þfí sumri, og þar upp á fékk hann kóngsins bréf, að meðtaka
M 500 rd. fyrir friua á Daða gózi, hverja peninga Páll
Stígs-son og meðtók af Eggerti lögmanni, og lofaði að útvega þar
uppá kóngsins qvittanziu, en hann entist ekki þar til; hvar fyrir
Kristofer Walchendorph klagaði uppá Daða góz anno 1569.
Anno 1566 dó Páll Stígsáon á Bessastöðum, var grafinn fyrir
framan altarið í Bessastaðakirkju, hvar yfir hans gröf er stór
h’ksteinn af marmara, sem ekki á sinn líka á öllu íslandi, með
þessari grafákript:

Paulus Stygottus Danorum ex sangvine clarus,
justus, castus, amans religionis erat.

Hann var hér höfuðsmaður 7 ár. Níels Ólafsson var hans
fógeti, hver sig kallar anno 1564 i dómi, sem hann lét ganga á
Bakkarholti i Ölvesi um reka á þorlákshafnarskeið, kóngsins
utnboðsmann yfir þremur fjórðungum landsins. En Hinrik Krag,
sýslumaður i Snæfellsnessýslu, sýnist þá vera fógeti yfir
Vest-firðingafjórðungi, svo sem bann kallast í Miðgarðadómi anno
1565, dag 7. maii. Og sambýðar þetta, því að þeir hafa verið
hér fullmektugir höfuðsmannsins Páls Stígssonar það ár, meðan

46

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:08 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/2/0717.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free