- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Þriðja Bindi /
37

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

54 SK.ÚLI LANDFÓGETI MAGNÚSSON.

37

liafa verið ætlun stjórnarinnar, að fvrirtækið mundi borga sig
svo vel, að þessir 300 dalir yrðu greiddir konungi aptur, er allt
væri vel komið á laggirnar.

Skúla gazt engan veginn að þessum flýti og þótti sem betur
þyrfti að búa um hnútana áður lagt væri út í annað eins
stór-ræði og þetta. Að áliðnu sumri 1751 fór hann utan í
embættis-erindum, en ætlaði sér þó jafnframt að vinna að þessu máli.
Kom þeim félögum nú öllum saman um að fela honum á hendur
að flytja málið við stjórnina og fá ýmsu framgengt í félagsins
þarfir. |>egar Skúli kom til Hafnar samdi hann ýtarlegt skjal
um málið og sendi til stjórnarinnar 20. nóv., og er aðalinntak
þess sem hér greinir:1

Fyrst skýrir hann í stuttu máli frá eymdarástandi landsins
og hversu allir atvinnuvegir liggi niðri eða fari í ólagi. Segir
hann landsbúum því að eins viðreisnar von, að stjórnin og hinir
helztu af embættismönnum landsins taki höndum saman og
legg-ist á eitt til að koma einhverju lagi á atvinnuvegina og kenna
mönnum að nota sér afurðir landsins betur en að undanföruu.
|>ví uæst koma sjálfar uppástungur hans, en þær eru þessar:

1. Senda skal 15 bændur frá Danmörku og Norvegi, er vel kunna
til akuryrkju, til Islands, og skulu þeir leiðbeina íslendingum í
þessu efni. í>eim skal veitt ókeypis far með skipum
verzlunar-félagsins og byrgja skal þá að akuryrkjutólum. Jarðir til ábúðar
með öllum peningi skulu þeim heimilar afgjaldslaust. |>eir skulu
og njóta styrks nokkurs þar til allt er komið vel á veg. —

2. Stofna skal verksmiðju, er gefi mönnum færi á að fá ull sína
vel unna. — 3. Tréfræ skal flutt til landsins fra Danmörku og
Norvegi, svo gera megi tilraunir til trjáræktunar. — 4. Sjómenn
skulu styrktir til að atia sér stærri skipa, svo þeir að sið
Holl-endinga megi sækja á rúmsjó til flskjar og nota skipin til
strandflutninga. — 5. Kenna skal íslendingum hina nýjustu og
beztu aðferð til að salta ket og fisk.

Að lokum skýrir Skúli frá því, að allmörg af yfirvöldum
landsins, bæði andlegum og veraldlegum, hafi kynnt sér
uppá-stungur hans og álitið að þær mættu verða landinu til mikilla

1 Jeg hef að vísu eigi getað náð í sjálft skjalið. en af tillögum
stjórnarráðsins má fullvel sjá, hvert innihald þess hefir verið (sjá
Lovsaml. f. Isl. 3. B. bls. 98 og Rentekammerets Norske
Relations-og Resolutionsprotokol 1752 No. 1).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:32 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/3/0047.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free