- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Þriðja Bindi /
236

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

236

TJM STURLUNGU.

honum hafi allar sakir átt að vera framkomnar, áður sói væri af
lofti þann sama dag, sem dómurinn var nefndur um hádegið,
enn dómendur hafi átt að lúka dómi sinum fyrir hádegi næsta
dag.1

Hin umræddu orð bera það þannig með sjer, að þau eru
skrifuð af manni, sem ekki hafði ljósa hugmynd um rjettarfar
þjóðveldisins, og þar sem jeg nú hef leitt rök að þvi, að þau
muni vera upphafleg i sögunni og ekki síðar í aukið, verður að
skoða þau sem vott um, að höfundurinn hafi lifað og skrifað
eftir það, að landið komst undir konung, og iiklega ekki fyr enn
nokkru eftir, að Járnsiða var lögleidd (1271—1273).

|>að er mikið mein, að sagan hvergi nefnir neinn
heim-iidarmann fyrir neinu, sem hún skýrir frá. Ef hún gerði
það, væri ef til vill hægra að ráða í, hver höfundurinn hefði
verið. Á einum stað virðist þó inega sjá það óbeinlínis á
orð-um sögunnar, frá hverjum höf. hefur haft söguna um þann
við-burð, sem þar er um að ræða. £>að er, þar sem segir frá elt
ingum þeirra forgrims alikarls og Önundarsona við
Arnþrúðar-sonu og |>órðarsonu, og aftöku þórðarsona og J>orsteins og Snorra
Arnþrúðarsona. Hákon J>órðarson og Hildibrandr bróðir hans,
þeir Arnþrúðarsynir, porsteinn og Snorri, og J>orsteinn
Urða-steinn eru á skipi við Hjaltaeyri. f>á berst þeim njósn um það,
að |>orgrímr aiikari og Önundarsynir hafi rænt í Arnarnesi, þar
sem Hákon átti bú. Urðu þeir þá hræddir um sig og leita
undan út til Svarfaðardals, ganga þar af skipi og fara upp til
Sökku. J>ar bjó Arnþrúðr, móðir J>orsteins og Snorra, með
son-um sínum Brandi og Klængi, og slást þeir í för með bræðrum
sínum. Upp frá þessu segir sagan svo smásmuglega frá öliu,
sem við bar í för þeirra, að hún hlýtur að vera frá sjónarvotti
komin: »Fóru síðan upp eptir dai um nóttina ok ætluðu til
fundar við Kolbein,2 því at þeim þótti þat auðvellra en finna
Guðmund, er hann var norðr á Melrakkasléttu. Eara nú, þar

1 Sjá um skuldadóm Grágás, Konungsbók, II, 149. og 151., um

afrjettardóm s. st. II, 116. bls.; hreppadómi skyldi lokið fyrir
sól-setur, að minsta kosti þegar skipamenn vóru sóttir, sjá s. st. II,
176. bls. og Staðarhólsbók, útg. V. Finsens, 254. bls.

3 Merkilegt er, að sagan segir ekki frá þessari fyrirætlun þeirra
fje-laga, fyr enn þeir Brandr og Klængr eru komnir í ferðina, og hafa
þeir þó eflaust gert þetta ráð fyr, líklega við Hjaltaeyri. þetta er
eitt af því, sem bendir til, að Brandr sje sögumaðurinn.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:32 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/3/0246.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free