- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Þriðja Bindi /
390

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

390

DM STtJRLUNGU.

strangan reikning, því að það er rjett, að allar þessar 3 sögur,
sem nefndar eru verða samferða til ársins 1183, eða rjett að kalla
þangað til Guðmundr hlaut prestvígslu, enn þá hættir ein þeirra,
Sturlu saga. Inngangsorðin Kmargar sögur verða hér samtíða*
benda og til þess, að í setningunni, sem á eptir fer, hafi verið
taldar fleiri enn tvær samtíða sögur, og að það sje rjett til getið,
að Sturlu saga sje hjer úr feld. f>að er auðsjeð hvað hefur valdið
úrfellingunni. Ritarinn hefur hlaupið frá orðinu »saga« á fyrri
staðnum til sömu orðmyndar á síðari staðnum og felt úr það,
sem á milli var.

J>á er það ekki heldur aiveg nákvæmt, sem segir um sögu
Guðmundar dýra, að hún endi, »þá er Brandr biskup er andaðr,
en Guðmundr inn göði er þá vígðr til biskups«. Síðasti
við-burður, sem Guðmundar saga dýra skýrir frá, er andlát
Guð-mundar, sem varð 1212,1 eða 11 árum eftir andlát Brands
biskups, enn 9 árum eftir biskupsvígslu Guðmundar Arasonar.
Enn hitt er satt, að síðustu deilur þær, sem sagan segir
greini-lega frá og Guðmundr dýri var við riðinn, eftirmálið um áverka
Skæriugs, virðast hafa orðið um 1200, eða um það leyti, sem
Brandr biskup dó, og getur verið, að höfundur formálans hafi
skoðað það sem niðurlag sögunnar, þó að hún skýri frá því á
eftir í stuttri grein, að Guðmundr hafi gengið i klaustur á
þing-eyrum og dáið þar.

f>á kemur hin merkilega grein um Hrafns sögu og sögu
Guð-muudar ins góða með tilvitnuninni í Isleudinga sögu Sturlu
pórðarsonar. »Saga Guðmundar ins góða«, sem hjer er nefnd,
hlýtur að vera hin sama og áður er nefnd í formálanum, það er
að segja prestsagan, og um hana er það rjett, að hún »lykzt
eptir ^ndlát Brands biskups«, enn ónákvæmt um Hrafns sógu,
því að Hrafn var veginn 1213, og sagan endar þó ekki fvr enn
þrem vetrum síðar, þegar porvaldr Vatnsfirðingur kom út úr
suðurgöngu sinni. í orðunum »lykzt liön eptir andlát Brands
biskups« hlýtur því »hón« að vera sama sem »saga Guðmundar
ins góða« (prestsagan), enn ekki sama sem »saga Hrafns
Svein-bjarnarsonar ok porvaldz» i málinu á undan. Enn hitt er
vafa-samt, hvort tilvitnunin í íslendinga sögu á bæði við það, að Hrafns
saga og prestsagan sjeu samtíða, og að prestsagan endi eftir
and-lát Brands, eða að eins við síðari liðinn. Ekkert þessu líkt finst

1 ísl. annálar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:32 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/3/0400.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free