- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
3

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

3 SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.



til guðs, sem haldinn var í Danmörku og Noregi þann 14. maí,
en hjer i landi 22. október 1756, svo sem sálmar, textar og
bænir, er þar til brúkuðust sýna, sem enn forvarast hjá
all-mörgum guðs kennimönnum þessa lands. En nú þegar sú
stærsta eldplágan, sem menn hafa vissar sagnir um, fjell yfir
land vort, með öllu því, er þar af hlauzt, var þar ekkert
við-hrært upp á þann máta utan lands nje innan, svo jeg heyrt
hefi, nema hvað fáeinir prestar tóku sjer fram um það, að
brúka opinberlegar viðvaranir og fyrirbænir, þann tíð er sú
stóra landplága yfir stóð.

Annálabækur og skrif þessa lands sýna auðveldlega, hversu
sá rjettláti guð hefur allopt heimsótt þaö með jarðeldsstrafíi
og öðrum eyðileggingum, þegar hann hefur sjeð, að
guð-hræðsla og rjettvísi hefur tekið að ganga úr góðu lagi og
kunni ei annars að koma í stand aptur eða betrast, nema
hann tæki þannig i taumana með holdinu. Jeg lit til og
meina helzt hjer i Vestri-Skaptafellssýslu, (er Siðusýsla hjet
að fornu, skoðist sá danski Pilagrimur og fleiri forn skrif);
þvi innan hennar takmarka, sem skrif sýna, er jeg undir
hendi hef, hafa 14 sinnum að þessu meðreiknuðu og enn
optar jarðeldar uppkomið og gjört hjer ýmsar eyðileggingar
og umbreytingar. Þó hafa öskuföll úr þeim misjafnt yfir
fallið, því sumstaðar má hjer telja 5, en sumstaðar 11
sand-lög i jörðunni, þó það siðasta eldhlaupið 1783 taki hinum
öllum fram, sem menn hafa skrif um, bæði að sinni
eyðilegg-ingu og verkunum, svo sem jarðskjálftum, er hjeðan rjettlinis
úr austustu eldgjánni (en ei úr Heklu) fjell yfir Árnes og
Rangárvallasýslur, sem og grassins visnan og pest, sem
or-sakaði margra manna og skepna dauða i þúsundatali. En
framar sýna það framandi skrif, að bæði i Grænlandi og
Danmörku sáust um þann tíma mikil merki á lopti,
himin-túnglum og jörðu. Hvilik býsn hjer á gengu ásamt
formerkt-ist i Noregi, loptpest og grasvisnun, sem sjá má af þeirri
uppbyggilegu Nýársprédikun Johans Nordals Brúns 1786, er
sá góði maður ljet prenta á sinn eigin kostnað, og sendi
hingað til lands kennivaldinu gefins að öllu leyti.

Um þetta síðasta jarðeldshlaup hafa vist tveir skrifað:
fyrst mr. Sæmundur Magnússon Holm, geistlegur stúdent við
háskólann i Kaupenhöfn um það skeið, sem eldurinn yfirstóð,
eptir skrifum og fregnum, sem þangað bárust, og kunni þvi

1*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0015.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free