Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
4
SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.
varla aö verða fullkomið, eður vel skiljanlegt. Hinn annar
er Herr. Magnús Ólafsson Steffensen, nýorðinn lögmannsefni;
hann hefur og þar um gjört skrif eptir eigin sjón, aðspurn
og undirrjettingum, er hann fjekk hjer hjá nokkrum mönnum,
þá hann hjer um reisti sumarið 1784. En so sem þau skrif
eru rituð bæði í framandi túngumáli, ekki að öllu leyti
sam-stemmandi, sem von var á, og hafa þar að auki allfá í land
hingað borizt, og kunna því ekki svo mörgum innlendum að
þjena, sem menn kjósa vildu, til uppvakningar að skoða þá
hirting drottins, sem hjer er skeð, sjer til siðbóta, þótti mjer
þvi óviðurkvæmilegt, að sú minning skyldi með minni
burt-kallan niður falla og aldeilis forgleymast eins og margt annað
guðs verk, sem fyrir hirðuleysi kemst í ævarandi gleymsku.
Og því framar finn jeg skyldu mína að víðfrægja þau drottins
vísdómsfullu verk, sem hann eins og einn eldlegur múr
verndaði mig mitt í þess eldshring og umsveiman, og Ijet
mig í öllum þeim ókjörum, sem hjer á gengu, halda lífi með
óskelfðu hjarta og óþreytanlegum kröptum, meðan sú tiptan
yfir stóð, sem jeg fæ aldrei nógsamlega grundað nje útsagt.
Tek jeg mjer því fyrir hendur að taka saman í eitt og
ein-faldlega í ljós leiða, það jeg dag eptir dag og tíð eptir tíð
hef uppteiknað, meðan eldstraffið yfirstóð, þar til guð gaf
aptur viðrjetting og góða endalykt á þeirri landplágu. Allt
það skrifa jeg nú eptir því, sem jeg af eigin sjón og vitund
ásamt annara sannorðra manna frásögum, tali og uppteiknun
veit fyrir guði og góðri samvizku rjettast vera. Ekkert er
hjer ýkt eða oftalað, heldur heil mörgu smávegis hjá hleypt,
er viðbar, og áhrærði ýms heimili og menn, því það hefði
orðið næsta Iangsamlegt. — fú sjerð, góðfúsi og
rjettþeink-andi lesari, að öll niðurraðan þessa skrifs er ei (eptir) sumra
þessarar aldar skrifs og stýlunar reglum, eða alfarasniði, þvi
það sigtar einasta til þess, sem áður er mælt; vona jeg þess
vegna og tilmælist, að þú virðir það, útleggir og leiðir á bezta
veg, hvaö sem aðrir hótfyndnir kunna hjer um að dæma, eða
fetta fingur út í, kæri jeg mig ekkert um.
Sje svo þetta mitt einfalt eldskrif fyrst og fremst tileinkað
guði til lofs og dýrðar, sem ljet sinn rjettvísan og náðugan
vilja þannig opinberan verða vor á meðal, og fullkomnaði
sín fyrirheit, sem finnast Sálm 89, v. 32—86, Zoph. 3, v. 12,
og víða annarsstaðar. Þar næst sje það börnum mínum,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>