- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
5

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

5 SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.



náungum, afkomendum, góðum og velþeinkandi vinum, sem
mig hafa sjerdeilislega um þaö beðið, item öllum æru- og
elskuverðum löndum mínum öldum sem óbornum af hærra
sem lægra standi, sem það kann til heyrnar eða fyrir sjónir
að koma bæði til fróðleiks og lærdóms að þekkja sinni síns
skapara og hans dásemdarverk. Jeg mælist þó til, sem
forsteinn Magnússon, sem skrifaði hjer fyr um jarðeld, að
það mætti verða svo sem nokkurskonar skuggsjá og
umþenk-ingarmeðal um þau síðustu fjörbrot veraldarinnar og
dóms-dagseld, sem koma mun yfir marga óviðvaralausa, eins og
fyrir er spáð og hjer því miður gáfust nokkur merki til.
Þjeni það öllum oss að forðast guðs reiðield, svo að nær sá
náttúrlegi varmi og eldur útslokknar í voru holdi, fyrir þann
gegnurnþrengjandi dauðans kulda, að vjer þá frelsaðir af
allslags skaðræðis- og lostaeldi, gagnhreinsaðir í freistinganna
eldsofni, mættum í vorri trú gullsins reynslu dýrmætari
fundnir verða og svo á drottins opinberunardegi, þá hann
mun með eldsloga birtast og höfuðskepnurnar af
yfirnáttúr-legum eldi brenna, og veröldin stendur í björtu báli, en
fordæmdir kastast í eilifan eld, þá leiði guð oss inn i það
eldmisturslausa herbergi eilífrar dýrðar, hvar vjer með öllum
hans útvöldum, (sem hjer leiddust í gegnum eld og vatn) og
öllum hans eldlegum hérsveitum fáum að lofa hann og dýrka
óaflátanlega. Þess óskar af heilum huga guðs óverðugur, en
allra hans barna skyldugur þjenari.

Prestsbakka á Síðu, d. 24. nóvember 1788.

Jón Steingrímsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0017.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free