- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
6

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

6

SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.

Undanfarandi hlntir og viðbnrðir, áðnr en eldnrinn yflrQell.

§ 1. Áður en þessi landplága yfir fjell voru mikil
land-gæði og árgæzka, þó yfirtæki það síðasta árið, því í
undan-farandi nokkur ár hafði ei verið þvilík blómgan og ávöxtur
á öllu með spökustu veðuráttu til lands og sjáfar. En
hvilíkt stjórnleysi, andvara- og iðrunarleysi hjer í
Vestri-Skaptafellssýslu var um þann tíma sjerdeilis í þessu
Kirkju-bæjar- eða Iíleyfaþinglagi hjá allmörgum, sem sorglegra er
til frásagnar, en jeg geti þar orðum eytt að. Hjer lifðu menn
í sælgæti matar og drykkjar, sumir orðnir svo matvandir,
einkanlegast þjónustufólk, húsgangslýður og letingjar, að ei
vildu nema þá allra beztu og krydduðu fæðu. Drykkjuskapur
og tóbakssvall fór að sama lagi, að á einu ári upp gekk hjer
í gildi, heimboð og þess kyns brennivín upp á 4000 fiska,
eptir sem jeg með öðrum vitanlega samanreiknuðum, er svo
hátt steig, að prestar fundust þeir hjer, sem ei þóttust geta
framflutt með reglu og andakt guðsþjðnustugjörð nema fyrir
brennivíns tilstyrk, hverjum og svo urðu sín liús í eyði látin
og margra annara, sem fjellu á sömu sveif. Margir vissu ei
hvað ríkir þeir voru af sauðpeningi, og þó þeir vissu, var
þó hjer hjá þeim ríkustu ein sú argasta tíundargjörð, og
af-dráttur til kóngs, kirkju og prests, sem ei tjáði að finna að
fyrir einn, er ei var af þeirra flokki. Nýjar uppáfindingar og
útfluktir, margur húsgangur, nær ei gekk að þeirra vild, þá
voru allt um of vanþakklátir, og þá þeir höfðu ekki úr hvers
manns hendi, það þeir vildu. Af stjórnleysi var sá góði
af-rjettur, er hjer fylgdi, fyrir óðal lagður og forsómaður, engin
afmörkuð lagasöfn á haust brúkuð, nje annað þar að hnígandi,
svo að maður mátti þar fyrir optsinnis síns missa. Það var
eitt ólukkuefni í landinu, að allir þjófir voru frómir kallaðir;
lög gengu hjer flest, sem höfðu tog undir það síðasta með
svoddan fylgi, flokkadrætti, óþarfa eiðum og lögleysu, að

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0018.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free