Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.
7
herra Ólafur Stephánsson, sem h.jer var amtmaður yfir
land-inu, ályktaði og kallaði fyrirliða þess óróa með einu opnu
skrifi rjetta ofsóknarmenn þess undirþrykta, hverjum hann
kom til aðstoðar og gjörði lög og rjett. Gekk þetta vastur
hjer mest á undir sjálfa eldkomuna, sem þau ólæti settu full
snöggt til rjetta. Þá, sem nálega eirðu ei nokkra tíð inni í
kirkjunni meðan guðsþjónustugjörð yfirstóð, rak þessi eldur
flesta út úr henni, að þeir fengu ei framar í henni að vera,
nema þeir einir, sem alvizkan fyrir sá að sanna betrun
mundu gjöra á soddan þvermóðsku. Af þeirri ársæld, sem
hjer var, gengu hjer á miklar umreiðir og umbrot að
for-hækka og fastsetja til ævarandi tíðar gjöld á jarðir, og þá sú
stiptan stóð sem hæzt, fjell hún niður og varð að engu, hvar
með sá rjettvísasti dómari sýndi, hvað hann vildi vera láta.
ÍÞegar drambsemin er sem hæzt, er hún fallinu næst; þó eru
hjer með heiðri og æru fráskildir allir gagnvandaðir menn,
sem hjer sem annarstaðar voru margir í bland hinna, sem
ekkert af áðurtöldu munu þekkja hjá sjer, og kunna því
sannleikann í þessu að vitna með þegjandi hlutum, er það
sama sýna, þó var guðs langlundargeð svo mikið og beið
eptir mannanna iðran og apturhvarfi og lagði straffið
langt síðar yfir og mýkra en tilstóð og forþjenað var.
Hann ljet þvi áður ýmsa viðburði ske, er benda kynnu
og leiða menn til rjettrar varúðar. Af heilmörgu vil
jeg fátt eitt sýna: í Feðgakvísl í Meðallandi, hvar eldurinn
siðar yfirfjell, sáust nokkrum árum áður fjöldi af
vatns-skrímslum með ýmislegum myndum. A jörðu hjá
Steins-mýri sáust eldhnettir liggjandi sem maurildahrúgur. Eitt
eld-slag flaug yfir lambhús á Oddum í Meðallandi, sem drap þar
lömb og reif eina stoð að endilöngu, er svo var í merginn
sviðin eins og hún hefði verið brennd af logandi járni. Og
þá bóndinn varð hjer af hræddur og fjekk að heyra hjer fyrir
spott og brígslyrði af einum dramblátum manni, svaraði
hann: »Láttu sjá þú verðir ekki óhræddari, þá
skruggueld-urinn "þinn kemur yfir þig að lægja hroka þinn, því jeg kann
að segja þjer að þú átt von á honum.« En síðar meir, þá
eldurinn kom yfir þann sama, varð hann sá úrræðaminnsti.
Annarstaðar heyrðust hjer bæði hljóðfæri á jörðu og sem
klukknahljóð í lopti afheilmörgum sannorðum mönnum.
Ofan-rigningar komu hjer miklar það vor. Dökkrauðar, gul- og
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>