Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
9 SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.
snögglega umbreyttist í sorg. Um nóttina fundust miklir
jarðkippir og hræringar. Þann 9. var hjer heiðríkt veður,
hækkaði nú mokkurinn óðum. Um kveldið gjörði mikið
steypiregn úr honum. En Skaptá, sem rann austur með
Síðunni, svo stórt vatnsfall, að hún var hjer á ferjustaðnum
70 faðmar á breidd hestum á sund landa á milli, tók nú að
þverra stórmikið. Þann 10. var þykkt veður með bitrum
vatnshvelfir, sem gjörði svo nær óþolandi sviða á augum og
beru hörundi, þar það á fjell og svima í höfðinu. Sumir
droparnir gjörðu göt á heimulublöðin þar þeir áfjellu ásamt
brunabletti á klippinga sauðfjár, er nýrúið var. Nú þverraði
vatnið úr Skaptárfarvegi að öllu leyti utan byggðarvötnin,
sem í hana runnu. Þann 11. kom austan fjúk, að víða tók
af haga, sem reyndar var úr mokknum með svo harðri skel,
eins og þá ísing fellur mest á vetrardag, sem þó var enn
dýpri og meiri í útheiðum og Skaptártúngum, en hjer lá
hann á jörðu nærfellt í 5 daga þar eptir. Þann 1’2. var
heið-ríkt veður með sunnanvindi, kom nú eldflóðið fram úr
Skapt-árgljúfri með ógna framrás, brestum, undirgangi og
skruðning-um svo þá eldurinn datt ofan í vatnskvikurnar eða rennsli,
urðu svo harðir smellir, sem mörgum fallstykkjum væri í
senn afhleypt. Hjelt nú eldsflóð þetta fyrst fram eptir
aðal-farveg árinnar, Iæsti sig svo ofan og út í brunahraunin, sem
áður voru beggja megin hennar frá gljúfrinu og hingað austur
að Stapafossi, (þau brunahraun, sem hjer eru eptir endilangri
sýslunni, frá Eyjará til Landbrotstanga og so í Fljótshverfi
hafa auðsjáanlega tvisvar fram komið, annað fyrir en annað
eptir íslands byggingu). 13. var heiðríkt veður með vindi á
út-sunnan, voru nú stórir brestir og dynkir hjer í útnorðri á
fjallabaki með jarðskjálftum og svoddan suðum og nið, sem
mikill fossagangur væri eða mörgum smiðjuöflum væri blásið
í eitt, hver óhljóð og skruðningar hjeldust við í sömu átt
þrjár vikur þar eptir. Sand- og gufumokkurinn svo mikill,
að hann sást yfir allt landið, vestur á heiðar í
Gullbringu-sýslu. Sólin, nær hún sást, sýndist hún sem rauður
eld-hnöttur, túnglið eins rautt sem blóð, svo þegar þeirra skini
sló á jöröina, bar hún sama farfa.
14. var logn, dreif hjer þá miklum sandi yfir allt með
enn meiri hárum, en vart varð við í fyrra regninu, þann 9.,
þau voru svartblá og íglittin að lengd og digurð sem selshár
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>