- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
14

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

14

SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.

rás, sem þá rennandi stórvötn eru í ísaleysingum á vordag.
Mitt í eldflóðinu framrunnu og byltust svo stórir klettar og
bjarghellur, sem stórhveli væri á sundi, eða því um líkt, allt
glóandi, og nær þeir rákust í eitthvað hart, sem fyrir varð í
framrásinni, eða til hliða, eða þá þessir klettar rákust eða
nístust saman, flaug og tindraði úr þeim svo stórir neistar og
eldglossar hingað og þangað, aö hræðilegt var á að horfa.
Lækir og ár þar beggja megin, sem ei fengu framrás,
stífluð-ust nú upp fyrir framan Hæl og bæinn Hvamm að vestanverðu,
sem síðar tók hann af með sinni yfirsveifan. Bæði þessi vötn
og önnur, sem eldurinn ei uppþurkaði, eða urðu að eldkveikju
í honum og tepptust hingað og þangað utanvert við hann,
urðu sem vellandi vatn og hver; upp af þessum vötnum
stigu þykkar gufur og dampar ásamt eldflóðinu sjálfu, sárlega
lyktarslæmir; hvar af nú jukust meir og meir þessa viku
skruggur og vatnshvelfingar, er steyptist ofan aptur, og hleypti
upp og fram heilum grastorfum og brekkum, sem ævarandi
merki mun sjá á Arfjalli og svo annarstaðar. ?ann 19. var
spakt veður með vindblæ af sunnan, sem hélt höfuðmokknum
á fjallabaki norður til jokla, hvaðan heyra mátti iðugleg
reiðarslög. Nú tók eldurinn með stóru neistaflugi sjer eina
höfuðrás til landsuðurs og stefndi á Meðallandið mest um
Melkvíslarfarveg, sem áður rann úr Skaptá í annað rennandi
uppsprettuvatn, sem fyrst kallaðist Botnafljót af bæ þeim,
sem stóð skammt frá þess upptökum og vestan það. 3?etta
vatnsfall rann til austurs fyrir ofan Meðallandiö, en framan
og neðan undir þeim gömlu hraunsbrúnum stóð bærinn
Hólmar í einum hóhna í því, en Kirkjustaðurinn Hólmasel á
sljettum bakka fyrir sunnan það, Efri-Steinsmýri fyrir ofan
það, þar það fjell til landsuðurs undan hraununum til sjós,
og sá gamli bær þar í austur landsuður nokkuð lengra frá;
en Syðri-Steinsmýri var hinu megin við það. Ein vatnskvísl
spratt upp í Meðallandinu fyrir austan og landsunnan
Hólm-asel, sem kallaðist Feðgakvísl, og rann þar til austurs í
Steinsmýrarfljót fyrir sunnan Syðri-Steinsmýri. Stóðu
Efri-Fljótar fyrir ofan þessa kvísl, en Syðri-Fljótar á bakka hennar
fvrir sunnan hana. t*ann 20. stóð veður af landsuðri. Þann
21. austanvindur með regni. Þann 22. var sama veður. 23.
og 24. sama veðurstaða, svo eldmokknum hjelt um þessa
daga til jökla; en sama var þaðan að finna, sjá og heyra,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0026.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free