Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.
15
sem þann 19. Það stóra eldflóð, sem þá fram steyptist þann
sama dag (þann 19.), uppfyllti snarlega fljótsfarveginn, og á
tilteknum 5 dögum tók það af og eyðilagði Hólma 12 hundruð,
báða Fljótana 24hdr., Hólmasel 12 hdr.,Botna 12 hdr. (þó nokkru
siðar), þrengdi svo vatni að Hnausum, að sú jörð varð
óbyggileg um 4 ár þar eptir, og við sjálft lá, að báðar
Steins-mýrar mundu eyðileggjast, þvi að túnhala þeirrar efri var frá
eldinum hjer um 80 faðmar, en að túngarði þeirrar syðri hjer
um 100 faðmar. Þó eyðilagði eldurinn mikið þeirra haga og
melapláz. Svo var þann 24. hjer nefnda mikill búnki
fram-kominn af því nýja hrauni, að þá jeg stóð á einum klett, sem
er næst fyrir ofan efri bæinn, á Efri-Steinsmýri og horfði
vestur yfir það, sá jeg einasta ofan á Hafursey, sem er eitt
einstakt fjall, liggjandi þar langt frá á Mýrdalssandi, en nú
sjest það sama fjall þaðan nærfellt ofan að sandi, svo mikið
hefur það hjaðnað og sígið síðan. Því þetta nýja hraun i
sinni fyrstu samanhrúgan og smeltingu var eins til að mynda
af brennisteins og saltverunni, sem í þvi var, og þá álún
er brennt eða þá vatn ólgar og samanhrúgast í frosti, svo
allt getur vel staðist hvað menn hafa sagt um þessa hæð,
þvi einn kann hafa um það talað i sinni mestu ólgu, en
annar þá það var fullsjatnað.
§ 6. Þann 22. júni áöur talda, sem var fyrsti sunnudagur
eptir trinitatis, afbrann sú væna og nýbyggða Hólmaselskirkja,
8 stafgólfa lengd, há og breið að þvi skapi, í henni brunnu
öll kirkjunnar ornamenta, bækur og graftól, item fórst þar sú
væna klukka frá 3?ykkvabæjarklaustri, er vó 24 fjórðunga, er
þangað hafði áður með biskupsleyfi ljeð verið, þar til
forsvar-anleg klukka væri til kirkjunnar lögð, sem búið var að gjöra,
og þar með befalað að flytja hana aptur í klaustrið, en það
drógst til þessa enda, að kirkjunnar skrúði og annað, sem
henni heyrði til, sem hæglega mátt í burtu flytja, brann þar og
eyðilagðist. Hafa sumir lagt prestinum, sem þar var, til lýta,
þar hann burttók sitt og annara burt úr kirkjunni, læsti henni
og Ijet svo lykilinn í annað hús, áður burt fór á föstudaginn,
svo maðurinn, sem sagt var að á laugardaginn þar eptir vildi
hafa náð skrúðanum, gat það þess vegna ekki, en síður
kirkj-una uppbrotið til þess, því hún var svo rammbyggilega
byggð. En hvað skal hjer til segja annað en þá guð vili
straffa duga mikilmennin ekkert, sem hans orð segir: mann-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>