- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
17

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.

17

tiú upp úr þessum hraunbeltum kemur eldkast upp undir
"Skálarfjall, brekkur og múla, sem voru fyrir austan Skál,
sem stóð á millum þeirra í einum fögrum og veðursælum dal
mót suðri; rann sinn lækur hvorumegin bæjar ofan úr dalnum,
stóð þar kirkjan fyrir framan bæjarhúsröðina. Þetta eidkast
þrengdi svo fast framan og neðan undir Múlana, að
gras-svörðurinn rótaðist upp og samansnerist, eins og þá einhver
ströngull er samanvafinn, svo nú er ei meira en 30 faðmar
frá kirkjugarðinum fram að hrauninu, sem varð þar svo hátt,
að nærfellt numdi við Múlana. Hjer fyrir stífluöust lækirnir
og þar á ofan kom óláta regn. Fólkið flýði úr bænum upp
á brekku fyrir ofan hann og lá þar við úthýsi og tjöld, og
tóku með sjer þaðan í burt allt hvað fjemætt var úr bænum
«g kirkjunni, klukkurnar, prests- og altarisskrúða að ei skyldi
fara sem í Hólmaseli. En af þvi steypiregni, sem var, ljetu
þeir kýr sínar inn í fjós, sem að litlu hvarfi varð, því að
vatnið óx fljótara, en þá varði, sem hleypti kirkju, bæ og
fjósinu í kaf. Bændurnir hlutu að rífa fjósið og náðu svo
með böndum og vindum kúnum upp úr ræfri á þeim. En
af krapahríðum og öðrum ókjörum, sem á gengu, gátu þeir
•ei svo snögglega flutt sig þaðan í burt, og voru þar svo í
nokkra daga. Vatnið, sem yfir bæinn fjell, vall af hita, þar
Á sáu bændurnir og fólk þeirra, sem allt eru sannorðir menn
að allra rómi, tvo grásvarta fugla syndandi lítið stærri en
andakyn, sem kailast urtir, þeir stungu sjer mest þar sem
suðan í vatninu krakkaði hvað heitast, en svo ókyrrir, að
bændurnir komust ei í skotfæri að skjóta þá (um slíka fugla
heyrist getið í Reykjahver í Ölvesi og svo annarstaðar). 28.
júni var mikill hvinur í útnorðurs eldgjánni. 24. fóru menn
úr Skaptártúngu að skoða, hvað gjörðist hjer fyrir norðan
byggðina; sáu þeir þá eldrennslið komið fram í Hellirsá hjer
á afrjettinum. 25. var sama átt á austan og landsunnan,
var þá svo mikill eldgangur á fjallabaki úr sömu gjá, að logann
lagöi í gegnum mokkinn í lopt upp svo strjálingur og neistar
úr honum komust eptir veðurstöðunni vestur á Mörk og
Tinda-fjöll upp af Fljótshlíðinni, og Hlíðar- og Landeyjamenn hjeldu
þar eld uppkominn, sem eigi reyndist annað en eldstrjál hjeðan.
26. komst vindur á útsunnan, sem undir kvöldið snerist til
norðurs. 27. kom vindur á vestan með óláta regni úr eldinum.
Sáum við þá hjer á Síðunni á jaðar eða undir ógnarlega

2

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0029.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free