- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
20

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

20

SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN. 20

með hlemmigötum vestur fyrir Skál; kallaðist þetta fagra land
Holtsdælur, var slægjupláz að ofan, en áfángastaður
ferða-manna að framan. Þar stóðu upp úr hjer og hvar gamlir
brunahraunshólar, til hins efsta grasivaxnir, en flestir holir
innan til forna. Einn af þeim var brúkaður fyrir sauðarjett,
og tók hjer um 300 fjár. Þetta fagra og gagnsama pláz
eyðilagðist þessa viku fyrst af eldinum, sem neðan kom, og
svo hinum, sem yfir það fjell. Undirjarðareldsumrótið horfði
jeg á, sem og fleirum er kunnugt; fyrst belgdi jörðina upp
með orgi og vindskurki niður í henni, sprengdi hana svo í
sundur, reif hana og tætti, sem þá ólmt dýr sundurrífur
eitthvað, þá stóð logi og bál upp úr hverjum áminnztum
hraunhól. Stórar hellur og grasflúðir fleygðust þá í lopt upp
ósegjanlega hátt til og frá með stórum smellum, eldingum,
sandgusum, reyk og svælu. Ó! hvílík ógn var að horfa á
þvilíkt guðs reiðiteikn og bendingu; sá fljótandi eldur fleygðist
hjer ofan á, svo allt agaði saman, og stíflaðist nú fyrst upp
Holtsá og fyllti dalinn með vatni, hljóp svo yflr árfarveginn
og uppbrenndi Holt. Þaðan austur með brekkunum og stíflaði
upp Fjarðará, sem nú kallast Fjaðará; hleypti vatni og sandi
yflr Heiðarengjar, sem voru fyrir neðan brekkurnar.
Holts-bændur, nær þeirra bær eyðilagðist tóku þeir sig til með
styrk Skálarbónda að byggja sjer hús þar uppi í heiðinni, en
hjeldust þar þó ekki við vegna eldsvælunnar og annars, sem
þar af reis, fluttu sig svo hreint burtu, þó nauðugir væru,
þann 17. sama mánaðar. En húskona var þar eptir í þeim
húsum, aldeilis einsömul fram að jólum, fór til mannabyggða
um þau, því hún halði þá gömlu hjátrú, að fleira kynni um
þann tima á flakki að vera og gjöra sjer ónæði; fór svo aptur
þangað eptir þau. En þá á veturinn leið var hún upptekin
og til byggða flutt, dó svo um vorið, þar hana brast sem
aðra þjenanlega fæðu. Frá 6. júli til 12. var eldurinn að
renna og fylla upp þann geym allan til fjalls, sem var allt
frá Skálarstapa að Heiðarhálsi; 3 fyrstu daga þessarar viku
var spakt veður, mikil suða heyrðist enn i sömu gjá. Þann
9. dreif hjer ösku yfir allt á Síðunni, svo öll jörð varð svört.
Þann 10. hjelzt sama öskufall við. Þann 11. og 12. kom
stórregn og vindur, sem bæði barði niður og feykti af þeirri
ösku, að aptur sást til jarðar. En þar sem frjettist, að ekkert
sandfall hefði komið í Meðallandinu, og að peningur hjelzt

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0032.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free