- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
21

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.

21

þar við, fóru bændur hjeðan nokkrir og svo lengra vestur,
að koma sjer þar fyrir með pening sinn, þó til lítils kæmi;
því að þá herrann vill straffa, kann enginn undan hans reiði
að komast.

§ 11. í>ann 13. júli færðist eldurinn að vestan eptir
Skaptárfarvegi i þrengslin fyrir ofan svo kallaðan Stapafoss,
er var hár með stórum svelg og iðukasti, er áin hafði mætt
þar um í nokkur hundruö ár, síðan eitt jökulhlaup keyrði
hana þangað, náði hún þaðan djúpum farveg til austurs
land-norðurs með klaustursfjallinu. Pann 14. fór eldurinn ofan
fyrir greindan Stapafoss, hjelt svo farveginn fram þá viku allt
í Töluhvamm, sem er lítinn spöl fyrir ofan Systrastapa, sem
er hjer um 4. part úr mílu fyrir ofan Kirkjubæjarklaustur. I
þenna djúpa farveg hrúgaðist nú svo eldhraunið, aó sól sá ei
upp fyrir það í hádegisstað frá Hunkubökkum; kúfurinn numdi
ogso af því við neðri ferðamannagötur á klöppinni, er við
klausturhaldari Sigurður grantskoðuðum í þeirri viku; o: þann
19. Þetta eldflóð fjell yfir hús í Dalbæ og upp brenndi þau
og mikið af túni. Líklegt ætla jeg, að sú 6 hdr. jörð byggist
aldrei framar. En þó eldurinn afbrendi ei Hunkubakka, sem
stóð á bakkanum fyrir ofan ána, skemmdi þó svo vatnið, sem
fjell norður af hrauninu þar eptir, með sínum undirgrepti,
að þau tún, sem þar eru, munu mestan part aftakast, og
húsin flytjast í óhultara pláz, er Smjörtorfa kallast, eins og
bóndinn hefur byrjað að gjöra. Hólmur í Landbroti, sem var
kirkjujörð frá Skál, fjekk hjer af stóran skaða, að lækir þeir,
sem þar voru beggja megin bæjar, stífluðust upp með öðru
vatni, sem að ofan kemur, svo að ei verður nema á einn
veg að bænum komizt, þó ei þá vatnavextir eru. far fyrir
ofan ána var ein hjáleiga frá klaustrinu, sem kallaðist
Laxár-nes, hafði stundum en ei stundum byggt verið; það pláz
umflaut svo af vatni, að ei mun framar byggjast. Þann 14.
júlii, sama dag eldurinn fór ofan fyrir fossinn kom í 4. og
nú síðasta sinn eitt hræðilegt eldframkast úr gjánni með suðu,
braki og brestum og þvílíkum undirgangi, sem allt ætlaði um
koll, sem jók hjer og svo mikil eldslög og skruggur, að varla
varð andartak á milli dægrum saman. Eldglossið ljek um
menn utan húsa og innan, þó fjekk enginn þar af bráðan
dauða. Alla þá viku sást hvorki til lopts nje sólar það
minnsta af þeirri þykku reykjareldgufu og svælu, er hjer lá

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0033.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free