Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
28
SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.
inn þá kominn vestur fyrir eyna, undir hverri aö vestan
fyrrum hafði staðið sá bær, sem kallast hjer í máldögum
Þverárdalur, og snjótlóð aftóku. Sá jeg nú, að eldurinn var
að rumla í landnorður af Eiriksfelli, svo hefði hann þá auslur
hlaupið, eins og til forna, þá var ei Kálfafelli óhætt. Þann
17. til 23. var hægð á með eldframrennslið, þó var hin sama
suða í austari gjánni. Smáregnskvettir gengu ætíð með sandi
blandaðir. Nú fór áminnzt vatn að þverra um þessa daga,
sem bóndinn frá Þverá sá greinilega, er þá fór að flytja sig
þaðan alfarinn, er eldur og vatn fór að skaða þar tún og
engjar. Svo þann 20. rjeðist jeg að fara austur yfir, fjekk
þó engan að fara með mjer mest af hræðslu, nema einn dreng
frá Hörgslandi. Þá jeg kom aö Brunná hjá Hvoli, fjekk jeg
fyrst í henni kafhlaup af sandbleytu, og svo sund landa á
milli. Fór jeg svo að vitja um fólk, sem var á Núpstað og
síðan að Kálfafelli, og tók þaðan allt hvað kirkjunni tilheyrði
og jeg gat með mjer flutt, fór svo tilbaka þann efri almenn-*
ingsveg, og hugði þar vatn grynnra en hjá Hvoli, einsog og
var. En jökulbleyta og vatnselgur var þó á þeim auraveg
svo mikill af vatni því, sem fram hafði hlaupið, að jeg var
að svamla með drengnum þar yfir frá miðaptani til
miðs-morguns daginn eptir, svo nær yfirkominn af þreytu,
albleyt-ugur, og fór þar enginn yfir síðan. Frá 23. til 31. hjelzt
sama við einsog fyrr, nema nú komu enn miklar hræringar
og skellir upp úr austari gjánni. Þannig endaði þessi
mán-uður.
§ 18. 3?ann 1. september kom hið annað ógnarlegt
eldhlaup fram úr austari gjánni, og tók nú af fyrir fullt og
allt öll hús og tún á Eystri og Ytri Dal. Voru þar þá staddir
menn, sem sáu upp á þess eyðileggingu. Þessi eldur fór
austur með brekkunum fyrir framan Seljaland, fjell yfir og
foreyddi öllum þeim slægjum, er jörðu þeirri fylgdu fyrir
neðan brekkurnar, teppti upp Brunná fyrir ofan og móts við
Núpa, fór svo í hennar farveg fram með því gamla hrauni
á móts viö Hvol, og nam þar staðar, að ferðamannavegur
tókst ei af; mátti þar strax af sjá og ráða, svo sem við ytra
hraunið í Meðallandinu, hvað náttúrunnar herra hafði ásett
með þetta. Brunná náði sjer síðar farveg niður með því
gamla hrauni, muldi mikið af því og skemmdi, þar með
stekkjartúnið á Núpum. Vatns og selturigningar, þoka og
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>