Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
36
SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.
sjálf skemmast af því sandfoki, er síðar kann betur sjást. —
Nú er frá því að segja, hvernig til gekk um menn og skepnur,
frá því eldurinn upp kom 1783 til enda þessa árs. Kvífje og
geldfje tvístraðist strax hingað og þangað; hjeðan og úr
Hverf-inu hraktist það út í Meðalland, Alptaver og Skaptártúngu;
sumt fór í vötn, sjó, eld, hraun á eyðisanda og torfærur og
drapst þar; það ráfaði inn í bæi og varð þá margt ófrómum
að bráð, framar en frá er segjandi, er þeim varð þó að
þvílíkri óblessun, að þeir flosnuðu þó með þeim fyrstu upp,
og dóu svo flestir í húngri. 13 sauðkindur hjeldu hjer lífi á
gömlu heyi í Hörglandskoti, 2 ær lifðu af á útigangi fyrir utan
Geirlandsá í öllu því plázi og fáeinar kindur með aðhjúkrun
á Hraunabæjum. Hversu mörg hundruð fjár hjer drápust,
verður ei sagt, því nokkrir voru, sem ei vissu, hvað mikið
þeir áttu af því, og þar með mundu margir hafa blygðast við
að segja til þess rjett fyrr og síðar vegna tíundar sinnar.
Menn skáru fje sitt eptir því sem til þess náðu, sjerdeilis þá
áleið sumarið og öll von var úti, það gæti lifað á nýju heyi,
eða úti gengið, sem þá var orðið svo magurt, að úr 12
göml-um sauðum, er hjer voru eitt sinn skornir, þá voru 6 merkur
mörs, að heita átti. Hvílíkur flótti var nú á búandi fólki,
sem var nú fram og til baka, er of þungt að segja. Einn
fór þar í hús, sem annar fór frá, því allt var með reikandi
ráði. Þeir, sem hjeldu við, fóru að öngla sjer heyskap og
fengu kann ske handa 1 og 2 kúm að vöxtum, sem var þó
fullt af sandi, og svo pestagtugt, að væri því kastað á eld,
varð loginn af því blár, sem af brennisteini og lyktin var eins
og af honum. Heita átti, að hjer lifðu af 20 kýr, sem flestar
dóu árið eptir, eða urðu aldrei samar, þó ei frá því fyrsta á
eingöngu nýju heyi, og fáeinir hestar, þó engir yrðu
mann-eða líkbærir til kirkju, þá áleið veturinn. Svo varð mikið
hrap á þeim, að einn sunnudagsmorgun, þann 9. nóvember,
duttu niður dauðir 20 hestar (sumir undir fólki, er þá fór til
kirkju) milli Hörgslands og Breiðabólsstaðar, lagði jeg svo
fólkinu hjer austan af Síðunni veiðibát minn til flutnings yfir
kvíslina hjer fyrir framan til kirkjunnar, þá hans þurfti og
það gat komizt til hennar. Góða veiði af laxi, sem hjer hefur
hvorki fyr nje síðar gengið í Skaptárós, lagði guð til fæðis
það sumar, svo hefðu menn gefið sig við þeim veiðum, hefðu
þær fleiri manna líf lengt, en þeirra, sem höfðu not þar af.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>