- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
41

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SKÝRSLUR DM SKAPTÁRG OSIN.

41

ef ei meir. Sumir tóku töðu og söxuðu hana smátt og
blönd-uðu saman við mjöl og gjörðu þar af graut og brauð. Öll
iiskbein og þess háttar, sem heima fundust og í fjöru lágu
sandkafin voru heimflutt og upphreinsuð, seidd og brudd
með lítilli mjólk og svo etin til næringar. Sumir, þó allfáir
i minni kirkjusókn, tóku fyrir sig að jeta hrossakjöt, dóu þeir
flestir. Aðrir vildu fyr lifið láta en leggja sjer það til munns.
3?á eð voraði og grös tóku að vaxa, voru rætur grafnar til
matar, voru langbeztar og hollastar kúmensrætur, sem hjer
voru miklar á klaustrinu og Hörgslandi, og jeg má segja gáfu
nokkrum með guðs krapti líf, og þar næst murur og
holta-rætur, en þær voru óhollastar, ef ei var því betri mjólk til.
Murnalauf og fifla ásamt harðasæufiflar voru saxaðir, eptir
sem fundust og brúkaðir i graut ásamt arfa, en fjöru- eða
sandarfi var hollari og matardrjúgari. Blóðberg, þar það
fjekkst, var og svo saxað til matar. Það er mjer minnisstætt,
hversu nokkrir í þessari neyð lásu nú andagtuglega sinn
borðsálm yfir þessum matvælum, er vildu ei áður líta við,
enda varð þeim þetta að lífsnotum, framar en frá geti sagt;
guð sýndi í því sem öðru almætti sitt. Af loptpestinni, sem
enn viðvarði (sem var svo þung, jeg segi fyrir mig, jeg gat
ei nje^ mátti draga andann til fulls af lopti, fyr en jeg þá kom
út í Alptaver, þá fannst mjer eins og öllu ljetti af), og af
þessari fæðu ásamt bygginu fengu margir kvalafulla lífsýki
og orma í lif, sem burt varð að rýma með hreinsandi
með-ölum, hvar til bæði heimula og hvannarót voru brúkuð, þar
ei fjekkst annað. Lífsýkin læknaðist með ýmsu móti, sumir
fengu sjálfkrafa bót á því, þá þeir fengu ferskan og hollan
mjólkurmat. Aðrir hlutu lengi að brúka harðystan drafla,
aðrir graut og brauð harðbakað úr rúgmjöli og vatni, sumum
bætti harðsoðið selskjöt feitarlaust og fleira svoddan. Allur
munnbjúgur og tannholdsveiki læknaðist af spenavolgri mjólk.
Holdsbjúgur og liðahnútar runnu af eptir óskum með graut
úr fiflalaufum mjölfestum, ásamt sinakreppum; en til að losa
þær upp þjenti þar með sterk hræring og sviti, er ei kvalalaust
af gekk, hvar til og vel kom kvikasilfurs plástur og sina umsal
(sie) af vallhumli og bergrót, þar það útlenzka fjekkst ei.
Við brjóstveikinni fann jeg ekkert betra en
brennisteins-blómstur; blóðbergsvatn var og þar við heilnæmt. Að
burt-taka loptpestarýldu úr húsum vær næfur og einir brenndur

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0053.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free