Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
42
SKÝRSLUR OM SK.APTÁ RGOSIN.
næsta heilnæmt. Þessi auðfengnu meðöl, er guð ljetossvera
að þvílíkum notum, sem sagt er, hef jeg því skrifað, að menn
kynnu að færa sjer þau í nyt, ef honum þóknaðist að
heima-sækja land vort með slíkri plágu aptur, er vjer þó
auðmjúk-lega afbiðjum eptir hans vilja.
§ 27. Annað fleira, sem oss lagðist til lífs, voru peningar,
sem komu utanlands frá og.gefnir voru svo kölluðu þá
»eld-bruna fólki« hjer í tveimur þinglögum til lífs og viðurhalds.
En hversu margir þeir voru að upphæð yfir höfuð, fengum
vær ei að vita. Komu 8, þar fyrir innan og yfir, þó ei meir
en 16 til hvers, sem mest þrengdi að, og við jarðir hjeldu sig til
að innkaupa sjer gripi, kýr og hesta, sem ei vildu mikið til
hrökkva, var þó betra en ekki neitt, að draga lífið á fram;
því þar sem allir voru sjálfráðir látnir vera, sem oss gátu
skepnurnar selt, stje ineir og meir upp prísinn á þeim, og
eptir því fleiri urðu nauðlíðandi í landinu af eldsins verkun,
að kýrin varð og hesturinn hvort um sig 8,10 og 12rd. og
jafnvel meira, eptir því sem sá var ágjarn og miskunarlaus,
sem seldi, og svo kom loksins, að gott þótti, að skepnan
fjekkst fyrir þetta verð. En nóg var til af þeim í
Rangárvalla-sýslu oss til frekari aðstoðar, ef önnur regla hefði verið
brúk-uð. En á austurlandið varð ei komizt til þeirra útrjettinga
sakir ófærra vega, sem áður er sagt; tók þá stiptamtmaður,
sem þá var Lauritz Andreas Thodal, annað ráð að láta þá
gefnu peninga, sem sagt var mundi hafa verið yfir höfuð
9000 ganga fyrir matvörur, mestan part rúg og bygg, sem
menn fengu hjer þó ei, nema með treiningi, þó nóg væri af
því. En af hestaleysinu urðu margir að gefa
Rangárvalla-sýslumönnum helming aptur af því að ná því úr
Vestmanna-eyjum og Eyrarbakka. En járn, færi eða hampur til nóta
eða netagjörðar, sem mönnum lá þó líf á, mátti ei segja að
fengist með fyrir þá gefnu peninga. En guð leit þá á vora
neyð og þessa yfirdrottnan, með því móti, að það sama sumar
1784 strandaði skip í Meðallandinu; þar fengum vær, sem
það gátum keypt, nokkurt mjöl til góðs viðbætirs, hamp, járn
og annað fleira, sem vel nægði, meðan sú harðasta dýrtíð
yfirstóð. Gras óx hjer sæmilega í túni og vallendi viðast
hvar af eldsöskunni, nema í Fljótshverfi, hvar öll grasrótin
hafði afbrunnið, svo ánægjanlegur heyskapur fjekkst hjer fyrir
þær skepnur, er til voru. Veðuráttan var og hagstæð til að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>