- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
78

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

78

FRÁSAGNIR UM SKÓLALÍF. 76

Pétui-sson skapaði allt þetta og samdi handa okkur þá komediu
Narfa, er leikin var undir eins, í hvörri eg mátti agera Dalsted
og fékk hrós hjá amtmanni Vibe fyrir hvað vel mér hefði
tekist, ’sagðist hafi hugsað að Dalsted þessi væri gamli Jacobæus
i Keflavik; samt fann hánn að því að eg hefði offljótt farið
að tala, þegar Narfl assistent kom upp úr ullartunnunni. En
Vibe var sá maður, að honum þótti gaman að öllu gamni,
var mesti gleðimaður. í En þessi svokallaða Herranótt held
eg ekki hafi verið haldm síðan 1798, enda endaði hátíðin svo,.
að sá krýndi kóngur lagði niður völdin, þakkaði sínum
Magn-ater sæmd þá, sem þeir hefðu gert sér með því að velja sig
til kóngs, en sagðist nú ekki vilja vera meiri en þeir, heldur
bara i samfélagi við þá, og eptir megni með þeim efla ríkisins
heillir. Það hneixlaði að svona var að farið vissa menn,
héldu hér stæði til revolution, eins og þá var á ferð í Paris.1)
Nóta svokölluð var bæði í Skálholti og Reykjavík, lika
fyrst á Bessastöðum. Þeir voru 9 tals, sem áttu að
upp-teikna syndir hinna piltanna: Notarius Scholæ, Platearum,.
Cubiculi, Templi, á Bessastöðum var bætt við Notarius
Cœnaculi. Hver þessara hafði vicarium, en svo var einn að
auki Notarius Inferiorum. Hér til voru helzt valdir stórir
menn og sterkir, kanske líka meðfram siðsamir. Það var ætlast
til að þessir níu með aðstoð famulorum, sem lika voru
Exleges, væru þeir þá ekki notarii eðavicarii, gætu mætt ef

1 Um Hevranótt í Reykjavíkurskóla er farið þessjim orðum í bréii
frá Geir’ biskupi Yídalin dags. 25. nóv. 1799 til Olafs Stefánssonar
stiptamtmanns: »Að eg ekki til þessa hefi svarað yðar
Hável-borinheita eins ástúðlegu, sem ætið mikilsmetandi tilskrifum,
við-vikjandi þeirri svo kölluðu Herranótt i Keykjavíkurskóla, kemur
bæði af þvi að eg hefi ætlað mér að tala við yður um þá sök
munnlega, en lítil ákoma á fæti hefir bannað mór í hér um viku
að komast út af bænum, líka hitt að eg hefi ekki í höndum conceptið
af því, sem framfór i skólanum 1797, hvort eg fyrir skemstu fékk
lánað. Eg hefi lesið það igegnum optar en einu sinni, „og segi
það satt, að eg hefi þar ekkert orð fundið, sigtandi til að iasta
monarchiska Regjering, eður til að uppvekja óleyfileg Friheds
Principia.’ Aungvu síður hefi eg hreint neitað þeim af piltunum,
sem nú fyrir skemstu báðu ’um mitt leyfi til nýs herranóttarhalds,
að gefa mitt samþykki til þess, þar eg vildi að þeirra jafnvel
saklausa gaman ekki gæti verið nokkrum til hneixlis. Yðar
Hávelborinheita góða bréf þessu viðvikjandi fylgir og hér með
eptir yðar fyrirmælum til baka.«

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0090.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free