- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
81

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

81 FRÁSAGNIR UM SKÓLALÍF.

76

sjálfur. Þeir skólapiltar gáfu nokkuð skrítileg nöfn þeim mat,
sem þeim var borinn. fessara nafna hefi eg heyrt getið:
kýrspað, sem kom stundum á borð hjá þeim, kölluðu þeir
Skammbeinsstaða Jarp, vatnsgraut: Þorgarð, mjólkurgraut:
Ingjald. Meira man eg ekki af þessum nöfnum. Yfir höfuð
voru þeir, sem stóðu piltum fyrir kosti, í slæmri stöðu. Rector
fylgdi skólapiltum móti biskupum og skólahöldurum. Einu
sinni voru þeir svo djarfir að gera út fjóra af sinum ílokki
suður til að klaga Finn biskup fyrir stiptamtmanni, tveir af
þeim voru vestfirzkir. Þeir fengu, að einn þeirra sagði mér,
góða áheyrn. Þegar einn þessara er dimitteraður vorið eptir,
sendiförin gerðist í jólaferíunni, finnur pilturinn sér skylt að
kveðja biskup. Þá segir biskup. «Þig Þ. skal eg aldrei
vigja< Strákur svarar: »Jeg hefi þá þá æru að kveðja yður
og geistlegheitin í einu lagi«, hver seinna siglir, attesterar
og verður hér á landi sj’slumaður, og hann var Isfirðingur og
kallaði sig Isfjord. Hans son var grosseri Kjartan Isfjord.
Það þótti mesta nauðsyn, og var það líka, að skilja þessar
matarveitingar frá skólahaldinu og láta hvern sjá sér fyrir
kosti, sem 1 skóla gekk, Það gat ei skeð í Skálholti; í
Reykja-vík var það auðvelt, á Bessastöðum aðeins mögulegt, það
hefur reynslan sýnt, en klúöurlega gekk það, svo mikið man
eg, og svo þótti Moltke, sem setti þangað oeconom, sem stóð
lengur en nokkur annar í þeirri slæmu stöðu. Skólinn á
Bessastöðum byrjaði með oeconomí, þá sungu piltar fyrir
máltíð í borðstofunni þenna sálrn:

»í hug til þinnar hjálpar stefnum,
hagtær þú vorum litlu efnum,
björg lífsins drýgi blessan þin,
bjóð frá oss víki hungurs pín.«

Þetta vakti óróa 0g einn af skólans kennurum sagði við
skóla-P!lta: >>Hvað marka eg ykkur, ef þið mættuð ráða, svo vilduð
þið helzt hafa hrísgrjónagraut daglega með kanel og sykri
yfir og stórsteik á eptir.«

Gullsmiður Thomsen, ærlegur maður, ekki samt heilagur,
þeir eru ekki margir, hann var svo góður við þá, sem ekki
höfðu olmusu í skóla, að í staðinn fyrir 30 specíur, sem þeir
áttu að gefa með sér, tók hann ekki nema 26. Petta þáðu

6

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0093.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free