Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
82
FRÁSAGNIR UM SKÓLALÍF. 76
drengirnir, og að því finn eg ekkert, en hitt get eg ekki liðið,
að nú kennir fjandinn sumum að snikja sér út gamlar þýzkar
specíur fyrir danskar, fá milligjöf 16, 20, 24 sk. á hverri,
reka þær gömlu í Thomsen, láta i vasa sinn skildingana, sem
þeir fengu í milligjöf. Aðra sögu á rek við þessa, þó í vissu
tilliti betri, veit eg líka. Ríkur maður á son í
Bessastaða-skóla, sem ekki hafði ölmusu; í staðinn fyrir að gefa með
honnm eptir skyldu, já lagaskyldu (og maðurinn var löglesinn)
30 specíur, fær hann honum 20, og dirfist að segja: meira
áttu ekki að hafa, meira færðu ekki. Með öllu mínu
spak-lyndi eða gunguskap finnst mér eg hefði ekki getað á mér
setið að halda þessu máli fyrir rétt, og látið dæma mér
með-gjöf með drengnum fullar 30. spee. og málskostnað að auki.
Þetta er mér nú raun að vita, en eg hefi líka fengið að
smakka lífsins gleði og meðal annars þessa. Fátækur húsmaður
deyr í Hafnarfirði, ekkjan kemur til mín, hún situr með 7
börn, það elzta 10 ára, og biður mig leggja til með sér við
hreppstjórann, að bjarga sér eitthvað. Þér verður ekki
bjarg-að með öðru en koma fyrir börnunum. Æ! eg vil ekki
missa þau frá mér. So, hver sveit ætli standist við því að
Ieggja þér eins mikið og þú þarft. Hún þegir. Hvað heldur
þú þér dugi um árið? Hún segir 30 rd. árlega. Jeg: þú skalt
fá þá, en farðu vel með börnin. Hreppstjórarnir gera ekki
ógilt það sem eg lofa. Nú kemur það sem mér þykir
elsku-verðast hjá þessari konu. Krakkar hennar dafna vel, 5 til 6
ár fær hún árlega þessa 30 rd. Nú kemur það mikla upsaár
i Hafnarfirði. Strákar hennar tveir gátu fengið hlut í veiðinni,
enda kemur kerlingin til mín, þakkar mér fyrir það, sem gert
var og segir: Nú þarf eg engan styrk meir. Þetta fannst
mér svo bjartanlega ærlegt, eg held einhver hefði þagað og
þegið 1 eða 2 árin 30 rd. í viðbót við sinn afla. Optar hefi
eg orðið var við nokkuð líkt. En Herrann gæfi eg gæti gleymt
sumum hrekk.jum manna, sem eg hefi orðið var við, því það
getur komið inn hjá mér mannhatri, sem er, einsog allt hatur,
nóg plága, einsog kærleikurinn mesta unaðsemd.
Mig furðar hvað litið menn komust af með í
Reykjavíkur-skóla, ölmusan var í seðlum 23 rd. og nokkrir skildingar,
átti að vera 24 rd., hitt var dregið af til að láta læknirinn í
Nesi fá þóknun fyrir hans function við skólann, ef piltar urðu
veikir. Með sparnaði dugði þessi ölmusa, enda var það
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>