Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
83 FRÁSAGNIR UM SKÓLALÍF.
76
merkilegt, hvað veslings húsfólkið þar í kotunum tók litið
kaup fyrir þjónustu og matartilbúning, fyrir persónu allan
veturinn, 8 mánuði, 3 kúrant dali. Ekki vöndust fátækir
piltar þar á sællifi, þar smakkaði eg ekki og margir fleiri
hvorki kaffi né the. Engan mat smökkuðum við fyrr en kl.
12, þá vatnsgraut með smjöri i. Önnur máltíð kom, eptir sem
dagur var langur eða stuttur, i rökkrinu, harður fiskur og
kaka með, og svo ekki meira, og eg þóttist lifa i sælgæti. Þeir
sem áttu rika að lifðu betur, keyptu sér rosinur, kaffi etc.,
já sumir seldu bræðrum sínum rosínur, en þær voru dýrar,
eg má segja 3 skildinga. Seinni ár mín í skóla fékk eg heilan
hnefa af rosínum fyrir latinskan stýl, sem sumir fengu hjá
mér yfir þeirra componenda. Sumir voru svo framsýnir að
þeir keyptu kjöt af Akurnesingum, létu sjóða og héldu
reglu-lega auction, bóglegg, herðarblað, rif af síðu etc. rétt undir
vökulok; prísinn varð hár; þar gat eg aldrei keypt neitt.
Þeir seldu lika sumir lectiu-kver, sem örðugt var að fá, já
jafnvel skipuðu novis að kaupa, Það átti og að þvínga mig
til þess, eg sagðist ekkert geta keypt; og þú skalt, var svarið.
Mér var svo slegin til Nepos fyrir 8 mark kúrant, útslitin
skræða. Þegar átti að fara að borga, þvi betalingsfrestur
var gefinn, var eg eins fátækur og áður; sá sem átti þenna
Nepos varð svo að hafa hann eða ekkert. A Bessastöðum
græddu sumir piltar í skóla, meðan hver bjó fyrir sig, aðrir
urðu þar skuldugir, já sumir allt að 100 rd. 3?að var
inter-essant að sjá þá mætast í Bessastaða stiga, annan ganga
upp á lopt með fulla grautarskál, hinn koma niður stiga með
tóma, einkum þegar sá, sem kom með tómu skálina, rak
olbogann í hinn, sem hann mætti, bara til að láta dálítið
spiliast úr henni. Svo voru kokkarnir á Bessastöðum þá
orðnir lærðir, eins og hirðmenn Jacobs I. á Englandi, að þeir
töluðu annaðhvort orð á latínu. Hver skólapiltur fékk þeim
kippu af spaðbitum með sínu merki við, sem kokkurinn varð
að standa skil á.
Eg hætti seinast við spaðbitana á Bessastöðum, en eg
hverf aftur til skólans í Skálholti, sem eg samt veit ekki
annað um, en eg hefi frétt. Eg minnist þess þá, að bæði í
Skálholti og eins í Reykjavík voru allir skólapiltar eins búnir,
nefnilega í sortaðri mussu og buxum úr islenzku vaðmáli.
Buxurnar náðu aðeins niður fyrir hnéð. Þeir voru í mó-
6*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>