Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR UM KÖTLUGOS.
I íandnámstíð hefir líklega mestallur Myrdalssandur verið
hygður, þar hefir verið fjöldi bæja, sem nú eru horfnir, stórar
bygðir hafa snemma eyðst einsog t. d. Dynskógahverfi
norður og vestur af Alftaveri og Lágeyjarhverfi fyrir vestan
Álftaver. Eg hefi áður (í Andvara 1894 bls. 69—71) talið
hin helztu nöfn eyðibæja á þessu svæði. Um það leyti sem
landnámsmenn fyrst komu í Skaftafellssýslu hafði Katla haft
langan hvíldartima og hefir hvorki hlaupið né gosið, svo
stórir flákar á sandinum hafa verið uppgrónir, en jökulkvíslar
með sandrákum hafa verið þar innan um graslendin likt og
nú er á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu. En svo tóku eldgos
og jökulhlaup smátt og smátt að eyða bygðirnar, unz alt var
orðið hraun og sandur.
Hvenær Katla hefir fyrst gosið, eftir að land var bygt,
vifa menn eigi, þó er enginn efi á því að Kötlujökull hefir
oftar en einu sinni hlaupið á hinum fyrstu þrem öldum, en
það hefir eigi verið fært i letur. Fyrsta hlaup, sem menn
þekkja með vissu, varð á 12. öld. Haustið 1179 kom Þorlákur
biskup hinn helgi að Höfðabrekku til fundar við Jón Loftsson,
og var ágreiningur milli þeirra um kirkjumál, »enn var önnur
grein millim þeirra, ok stóð sú af Höfðárhlaupi, þvi hún
hafði tekit marga bæi, þá er þangat lágu undir, og tvá þá,
er kirkjur voru á. Varð af því minni tíund ok færri hús til
brottsöngs«. Þetta Höfðárhlaup hefir þá líklega fyrir skömmu
verið afstaðið og hefir gjört mjög mikinn skaða, því af öllu
má ráða að þar hafi verið stór graslendi, og er sagt á sama
stað að Höfðabrekkuland »þótti eitthvert bezt vera, áðr en
Höfðá spiltií.1) Höfðabrekkubær stendur nú einsog kunnugt
Biskupasögur I, bls. 282-283.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>