- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
238

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192

SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS. 238

miðdag hvessti á norðvestan, féll þá svo mikill sandur með
öskuryki, sem í fannir samankeyrði i lágum, þar logn á var,
þetta gekk til sólarlags, með hálfljósri birtu í húsum. Næstu
nótt eftir linaði bæði öskufallinu, mökknum og eldganginum
svo lítið jarðskjálfta fanst þá nótt. Laugardaginn, þann 25.
Oct., var mökkurinn minni en vant var, lagði þá öskufallið
ýmist i suður eður landsuður, fundust þá ei jarðskjálftarnir
nema heyrðust skruðningar þann dag, alt til kvölds, um
nótt-ina eftir fundust fáir jarðskjálftar, þó harðir í bland.
Sunnu-daginn, þann 26., var mökkurinn minni en vant var, með
sömu veðurstöðu sem næsta dag fyrir, lagði þá öskufallið
ýmist suður eða landsuður, sem fyrra daginn, heyrðust og
ekki skruðningar né fundust skjálftar1). Mánudaginn, þann
27. Octbr., var mesta stórviðri2) af fjúki og sandfjúki hér í
Mýrdalssveit, sem gekk allan þann dag til kvölds, sást þá
ekki neitt til jökla, heyrðist og ekki neitt til gjárinnar fyrir
ofviðri, en eldingar sáust3) i bland fljúga um loftið.
Priðju-daginn, þann 28., var þýðviðri og dÖgg, sem gengið hafði um
nóttina, heyrðist þá litið til hlaupsins, eigi heldur
hrær-ingar miklar, en fannir af snjó og sandi voru víða komnar
um jörðina, helzt þar afdrep var. 3?ann 29., 30., 31., 1. og 2.
Novembr. sást ei nema endur og sinnum til jökla fyrir
slúð-viðri og þykku lofti4), en þann þriðja var heiðskirt veður,
sást þá til mökksins litillega, sem úr kolagröf blossaði eldur
og reykur. Hefir svo þessi bruni yfirstaðið frá þeim 17.
Oct-obris fyrir miðdag og til þess 7. Novembris sem er 46
dægur.

Appendix ad authoris relationem.

Pó hefur öðru hverju alt að árinu 1756 sést
eldglær-ingar úr þessari vofeiflegu gjá, einnig grá reykjarsvæla, er
upp hefur hnyklast i 5 stöðum, færri stundum, ásamt 3
vatn-hlaup, sem frarn úr henni hafa kastast, með fýluhraða og
jakaburði, er i sjó hefur fallið. En til eftirtektar fyrir þá,

J) íyr en um nóttina. A.

2) á norðan og landnorðan. A.

s) en eldglossar sáust. A.

4) var j)á mökkurinn enn yfir gjánni. A.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0250.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free