- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
239

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

192 SKÝRSLUR UM KÖl’LUGOS.

239

sem kunnugt er um Mýrdalssand og veg milli Mýrdals og
austursveita, þá hafði áðurnefnt hlaup þá framrás, að það
hljóp þann fyrsta dag, 17. Oct. og nóttina eftir, milli
Hafurs-eyjar og Höfðabrekkuafréttar, svo það dreifðist um allan
sand-inn, þá fram til Hafursey kom, fór það fram fyrir og suður
að Hjörleifshöfða, beggja megin alt í sjó fram, svo langt að
mönnum virtist jökullinn standa botn víst á 40 föðmum,
gjörði svo langt nes fram í sjó af sandi og jökli, en sumt af
því vestur með Kaplagörðum framan Skiphellir í sjó fram og
alt að Víkurkletti og um mestallan þann gamla jökul,
hvor-um hlaupið umsneri, tepti svo Kerlingardals sandkjaft fyrir
framan, stíílaði upp vatnið, að gekk með jökuljökunum uppá
túnið í Fagradal, svo varla sást þeiin bæ óhætt; svo varð
mikið lónið, að belgdi upp undir Kerlingardalstún, hljóp þetta
hlaup með hraðferð út á Víkursand, og nær jafnhátt
Sævjtr-hólsnesi; þetta umtalað hlaup, nær fyrst framkom, klaufst
um Hafursey, fylti upp alt það sund, sem var milli jökulsins
og eyjarinnar, vestur að Kambshálsum, hljóp annar partur
þessa fyrir austan Hafursey, um allan þann sand, alt að
Loð-insvíkum, og vatnið með jökulshraflinu viðast yfir þær, hvert
höfuðhlaup stefndi til bæarins Bólhrauna, en þá suður eftir
sandinum kom, veik það við vestur á sandinn og hljóp
vest-anmegin Eyjarinnar, alt í sjó fram, um hvern tíma tveir
menn voru á sandinum milli Hafurseyjar og Loðinsvikna, nær
þeir sáu til hlaupsins ofan af jöklinum riðu þeir sem mest
gátu undan hlaupinu og flýðu uppá einn háan sandhól, fyrir
sunnan Loðinsvíkur, og á þeirri höstugu ferð skáru þeir á
silana á áburðarhestunum, er þeir ráku, og á gjarðirnar, þá
reiðingurinn undir kvið fór, þar tíminn leyfði ei að rétta hann
við, lenti svo farangurinn i hlaupinu. Eftirkomandi nótt voru
nefndir menn á fyrtéðum sandhól og sáu ei hvor annan fyrir
myrkri og öskufalli, nema þá eldur glampaði úr mökknum;
um daginn eftir, þá lítið sást til, sáu þeir jökulinn alt
um-hverfis sandhólinn með vatnsgangi, svo þeim virtist til að
mynda, sem væri þeir á litlum bát á sjávarhafi millum þess
mesta hafíss; varðveitti guð svo þessa menn, að þeir komust
þennan laugardag, nær rénaði vatnið, i Loðinsvikur, óskemdir
með heila hesta sina. Um sama tima láu þrír menn við
al-menningsveginn á hálsinum i Loðinsvikum, sem ásamt hinum
komust, þó með lifsháska, yfir mörg sund skömmu eftir í

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0251.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free