- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
264

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

VII. LÝSING Á KÖTLUGJÁRGOSINU 1823.

e f t i r

Svein Pálsson.1)
Formáli.

Svo hefur nokkrum sýnst, sem prófasturinn síra Jón
Steingrimsson, í sínu fróðlega ritsafni um Kötlugjá og hennar
hlaup hafi miður réttilega — ef ekki tileinkað henni eldhlaup
þau 511, sem menn til vita komið hafi úr jökli þeim, er að
vestanverðu heitir Eyjafjalla,- í miðjunni Sólheima,- og að
austanverðu Mýrdalsjökull, þá þó — talið hlaupin úr nefndum
jökli í samfellu, sem hefðu þau öll komið úr einu og sama
eldvarpi, nefnil. hinu austasta, er nú kallast Katla eða
Kötlu-gjá. En bæði mun frekari skoðun og kunnugleikur um
þenn-an jökul, líka eftirfylgjandi ritlingur sýna, að sá lærði og fróði
maður var sannleiknum nálægari, en áður umgetnir óreyndu
og hálf- eður alls ókunnugu umdæmendur ætla. Nú á
tím-um skal hvergi á þessum jökli finnast merki nema til tveggja
eldvarpa (crateres); er hið minna ummáls á vesturenda hans,
eða svokölluðum Hájökli (Gap Hecla), nálægt Guðna- (eða
sem sumir halda réttar Goða- eða Guða-) steini, og hið stærra
á hans austurenda, norður af prestssetrinu Heiði, eða hin svo
kallaða Kötlugjá.3) Af áðurnefndum Hájökli er auðsjáanlegt,
að gil eða dalur gengur undir jökulinum austan frá Kötlu til
suðvesturs, niður fyrir sunnan fjallið Hvítmögu á
Sólheima-landi, úr hverju gili eflaust komið hafa vatns og eldhlaup þau
öll, sem í annálum nefnd eru úr Sólheimajökli, og gegnum

’) Eftir eiginliandarriti Sveins læknis Pálssonar i Lbs. 210—4°.
s) Jón pr. Austmann er sá einasti, sam liingaðtil hefur aðgætt
þetta eldvarp. Sjá Klausturpóst ársins 1823.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0276.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free