Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SKÝRSLUR UM KÖTLUGOS.
289
dró áttin sig meir til hafs og rigninga, og þess á milli
austan-storma, hvað alt lagðist á jafntök í að sundurþvæla og burtu
feykja sandinum, en láta það fínasta rigna niður í jöróina,
til að snúast henni upp í beztu frjóvgun eftirleiðis.
fannig lauk nú eldgosi þessu á 28 dögum, og verður
ekki annað með sanni sagt, en að það hafi gjört langminst
af sér allra þeirra, er menn nú vita og þekkja til, líklega
þess vegna, að vatnsmegnið í sjálfu eldvarpinu hefur aldrei
orðið svo mikið, að brotið gæti töluvert af falljöklinum, né
borið með sér fram yfir sandinn, einsog í hinum fyrri
hlaup-um. En í þess stað sýnist, sem fá hlaup hafi eftir skilið
eins mikinn jökulaur á Mýrdalssandi, sem þetta, hækkað
hann allan og fylt alla farvegi og lágar, svo hann nú er að
kalla sléttur, og virðist góðum mun fljótari yfirferðar en áður,
einkum á Tunguveginum. Sama má og segja um afleiðingar
þessarar eldsuppkomu; þær eru — nú á 4. ári þar frá að
reikna, — svo litlar sem engar, enginn manndauði1) né sér-
fó ekki flyti það eiginlega af sjálfri eldsuppkomunni, voru |>aö
þó nokkurskonar og í þá tíð sára hörmulegar afleiðingar þessa
annars væga Kötluhlaups, að sunnudaginn þann 14. september
s. ár, drukknuðu, eða réttar aur- og sandkæí’ðust 3 merkismenn
í áður umgetnu, nýorðnu vatnsfalli fyrir austan Hafursey, er nú
heitir Kötlukvisl; þetta voru: eandidatus juris Þórarinn Oefjörð,
sonur fyrrum brennisteinsforvaltara og
Múkaþverárklausturs-haldara Magnúsar fórarinssonar og Ingibjargar Hálf’dánardóttur
rektors á Hólum, hálærðs manns, — siöan 1. ágúst settur
sýslu-maður í Skaftafellssýslum, áður fáein ár í Rangárþingi, og var
þetta hans fyrsta embættisreisa liér, en þ’ótt bú hans ennþá
stæði á Skammbeinsstöðum í TJppholtum; annarvarPáll prestur
Olafsson, prestur að Eyvindarhólum, Pálssonar klausturhaldara,
og dóttursonur Jóns prófasts Steingrímssonar, nýfluttur frá
Skaftártungu prestakalli til Uppholtaþinga, en slóst i ferð með
hinum fyr nefnda, til að annast um nauðsynjar sínar þar eystra;
og hinn 3. Benidikt fórðarson, fátækur bóndi, nýgiftur í annað
sinn, merkisskáld og gáfumaður, fenginn til að fylgja þeim úr
Tungunni, út yfir sandvötnin, ásamt 2 öðrum, sern með
naum-indum afkomust. Lögðu þeir öndverðan sunnudag frá Hrífunesi
í mesta dimmveðurs regni, þoku og megnum austanvindi á
Mýrdalssand, svo þegar út að oftnefndu vatnsfalli kom, sást ekki
vestur yíir það fyrir regn og vatnsdrifi, Benedikt á undan og
hinir á eftir, en í sama bili hófst það áður (í nótu við 23. júlí)
umtalaða öldufall, gekk yflr og kollvarpaði prestinum með öllu,
samt hafði nærri því tekið annan hinna fylgdarmannanna, hefði ei
19
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>