Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
296 UM SKATTBÆNDATA L 1311.
305
hann ritar »d«. Enn megum vjer það? Að visu virðist það
mjög varhugavert, þvi að alstaðar annars staðar telur skráin
i tólfræðum hundruðum.
Enn hins vegar ber skráin sjálf það með sjer, að hún er
eftir efni sínu ekki annað enn útdráttur úr nákvæmum
sundur-liðuðum skírslum um skatt konungs af íslandi, þar sem hver
sísla og hver þingsókn hefur verið greind firir sig, og hver
einstakur bóndi tilfærður með nafni og heimili, sá er skatti
átti að svara. Innheimtu skattsins var svo firir komið um
þessar mundir, að það var mjög áríðandi firir konung að
vita firir víst, hve margir skattgjaldendur vóru í hverju
hjer-aði um alt land. Síslurnar vóru ekki seldar á leigu gegn
föstu eftirgjaldi, eins og síðar fór að tiðkast (sjá t. d. Tsl.
ann. við árið 1354 um ívar Vigfússon Hólm). Firir að krefja
inn skattinn áttu síslumenn eftir Jónsb. Þegnsk. 1. k. að taka
undir sig þingfararkaupið, sem nam 10 álnum eins og
skatt-urinn og var innheimt með honum, eftir sömu reglum og
hann og hjá sömu gjaldendum. Þessi regla um innheimtuna
virðist hafa staðió óhögguð þangað til á dögum Hákonar
hálegs, er kom til ríkis 1299. Hann reindi á hinum firstu
stjórnarárum sínum að þröngva kosti íslendinga með ímsu
móti, t. d. með níjum álögum og með því að skipa norræna
síslumenn og lögmenn (sbr. rit mitt Um upphaf konungsvalds,
Rvík 1908, 58.-65. bls.). Meðal annars virðist hann þá hafa
viljað klípa af síslumönnum hálft þingfararkaupið, sem þeim
bar að lögum firir innheimtu skattsins, þvi að svo stendur í
Konungsannál við árið 1307: »Útkoma ívars Hólms Jónssonar
með konungs bréfum. í þeim stóð svo, at sýslumenn skyldu
hafa hálfan vísaeyri, þat eru 10 álnir af hverjum bónda,
en áð r vóru 5 álnar«. Vísaeyrir táknar hjer bersinilega
skattinn og þingfararkaupið samlagt. Með þessu
kon-ungsbrjefi lisir konungur þá ifir því, að eftirleiðis skuli fara
eftir ákvæðum Jónsbókar um innheimtuna, þannig að
síslu-menn skuli fá alt þingfararkaupið, 10 álnir, í stað þess að
þeir undanfarin ár hafi ekki fengið meira enn helming af þvi,
eða 5 álnir, og virðist mega ganga að því vísu, að þessi
undanfarandi lækkun á tekjum síslumanna, sem konungur nú
fellir úr gildi, hafi verið gerð eftir skipun hans sjálfs og sje
einn liðurinn í ifirgangi hans við íslendinga. Einmitt um
þessar mundir (1306—1307) heikist hann á öðrum kröfum
20
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>