Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
479 bæjanöfn á íslandi.
414
V.
Annar höfuðbálkur bæjanafna er, eins og áður var sagt,
dreginn af landslagi og þvi sem finst í náttúrunni, og má
skifta honum aftur i smærri bálka og á ýmsan hátt, og fer
það nokkuð eftir geðþótta, hvernig flokkað er eða hverjum
heitum er skipað saman; vjer vonum, að sú flokkun, sem
hjer verður höfð, þyki nokkuð nærri lagi, þótt sumt. megi
hafa eitthvað Öðruvísi. Fyrst eru nöfn á sljettlendi, hvurt
sem er harðlendi eða votlendi (mýri), og sem áframhald þar
af nöfn með túngum og töngum og þvílíku, og svo reka
lest-ma nöfn, er merkja sand (-fleti) og það sem þar á skylt við.
Hin siðustu þeirra nafna benda á vötn og sjó — og eru þá
talin heiti, sem dregin eru þar af, og svo aftur horfið að
þur-lendinu og þá tekin heiti, sem dregin eru af dældum
jarðar-innar, smáum og stórum; svo koma heiti frá því gagnstæða,
hæðum og fellum osfrv.; þá koma nöfn sem dregin eru af
skógargróðri og öðru sem þar á skylt við. Þá eru ýms nöfn,
er vel mætti nefna flokkleysíngja og eru þó skyld hvert öðru
að miklu leyti. Og allra síðast eru þau nöfn er leidd eru af
hverum og laugum (jarðhita).
1.
slétta
kemur aðeins fyrir örsjaldan og ósamsett: Slétta V. XIII.
XVI (0g Minni S-). XXI.
flöt, ilötur.
Samrar merkíngar og sljetta, en þó vist ætíð haft um
minni »sljettur«. Jeg greini ekki milli þessara tveggja orða,
bæði vegna skyldleika og hins, að ruglíngur sýnist vera um
þau. Nöfnin eru:
Hrekkuflöt VI.
Stekkjarflatir (-fletir AM) XVI.
Stekkjarflatir (e. -fletir 1861)
XVII.
Fletir XIX.
Skeiðflötr II.
Sturluflötr XX.
Skógafletir XVIII.
Nöfnin eru öll greinileg.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>