- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
611

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

SÖGUÖLDIN.

611

Þórarinn rammi Álfsson í ÍPambardal (í Strandasýslu).
»Hann haföi lengi verit í förum», segir sagan, >ok svá
far-sæll at hann kaus sér jafnan höfn þar, er hann vildi*.1)
Þorsteinn bolstöng, svsturson Áskels goða, hefur verið
kaupmaður. Hann kom haust eitt út i Húsavík, átti í skipi
og varning, bæði ljerept og klæði. Þá er hann hafði seit
vörur sínar og keypt aðrar, fór hann utan sumarið eptir.2)

Onundur sjóni Ánason frá Ánabrekku hafði opt
verið i förum landa i milli, áður en hann fór utan með
Agli Skallagrímssyni (um 950). Hann var nokkuð eldri en
Egill; hann mun hafa verið farmaður á yngri árum.3)

Eptir miðja 10. öld er getið ýmsra íslenskra kaupmanna
eða farmanna. Glúmur Oleifsson frá Varmalæk i
Borgar-firði hafði lengi verið i förum, áður en hann kvongaðist
Hallgerði Höskuldsdóttur (um 960).4) Þorleikur
Höskulds-son var að sögn Laxdælu farmaður mikill og með tignum
mönnum, þá er hann var í kaupferðum, áður en hann
sett-ist i bú. Hann var einnig í vikingu. Bárður
Höskulds-son bróðir hans var einnig farmaður.5) Samtiða þessum
kaupmönnum af Vesturlandi er getið um Arnór
rauð-kinn Steinólfsson norður í Eyjafirði, er var lengi í
för-um.6) Vjesteinn Vjesteinsson, er síðast átti bú undir
Hesti i Önundarfirði, var og í förum um þetta leyti. Hann
er sagður góður fardrengur. 961 fór Gísli Súrsson, mágur
hans, utan með honum. Þeir voru úti meir en hundrað
dægra og brutu skip sitt um veturnáttaskeið við Hörðaland.
I^eir fengu þá hálft skip hjá manni einum, er Skegg-Bjálfi
hjet, og fóru með honum suður til Danmerkur. Þar voru
þeir i Vjebjörgum (Viborg) um veturinn. Vjesteinn var i
fje-’agi við norrænan mann, er Sigurður hjet. Hann var þá
vestur á Englandi og vildi slíta fjelag við Vjestein. Hann
fór því þangað, en þeir Gísli og Bjálfi til Noregs og
út til íslands um sumarið. Settist Gisli i bú sitt en Bjálfi
keypti hálft skipið af honum. Árið eptir kom Vjesteinn
til Islands með Norðmönnum nokkrum og var þá
myrt-ur (963).’)

r) Korm. 14/31 r) Reyk. 1/5-8 3) Eg. 67/ 246. *) Nj.
13/57. s) Lax. 25/87. 6) Glúm. 11/32. ’) Gísl. 4/10, 7/16-17,
8/17-18, 11-13/24-30.

40*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0623.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free