- Project Runeberg -  Safn til Sögu Íslands og Íslenzkra Bókmenta / Fjorða Bindi /
660

(1856-1939) [MARC]
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

660

FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.

skipseigendur komu úr utanferðum, seldu þeir opt skip sín,
ef þeir hugðu að þeir mundu eigi þurfa á þeim að halda, og
ef þeim bauðst kaupandi að þeim, eða þeir gáfu þau
frændum eða vinum og þágu laun fyrir. Stundum keyptu
þau aðrir Islendingar, sem ætluðu utan, en stundum
Norð-menn, eða jafnvel aðrir Utlendir menn, sem voru staddir á
Islandi. t>á er Islendingar seldu útlendingum skip sín,
mink-aði skipaeign landsmanna við það, en þeir virðast eigi hafa
hugsað mikið um það, og þeim hefur eigi heldur verið
fylli-lega ljóst hvaða þýðingu slíkt hafði. I annan stað seldu
Aust-menn, sem komu til Islands, Islendingum opt skip eða hlut 1
skipi. Erlendis eignuðust þó Islendingar flest skip, bæði með
því að kaupa þau og með því að fara i víking eða ganga í
þjónustu hjá konungum, jörlum eða öðrum stórhöfðingjum,
sem gáfu þeim skip að skiinaði, ef þeir höfðu reynst vel eða
unnið eitthvert það verk, sem þeir vildu launa konunglega.
Einstaka sinnum fengu Islendingar líka skip að gjöf erlendis
hjá frændum sinum eða vinum, og það kom fyrir að þeir
ljetu gera skip handa sjer í Noregi.

3?að er hins vegar eigi víst, að allir þeir íslendingar,
sem sagt er um í sögunum að komið hafi út á eigin skipi,
hafi verið skipseigendur. Sögurnar má eigi ávalt skilja eptir
bókstafnum, hvorki um þetta nje ýmislegt annað; allra sist
má skilja svo þær sögur, sem guma mikið af sumum hetjum
eða mönnum, sem þær segja frá, og eru meira eða minna
ýktar. 3?á er Islendingar komu úr langferðum i fjarlægum
löndum til Noregs eða annara nágranna landa Islands, voru
þeir opt slyppir að flestu og við lítið föruneyti. Þeir gátu þá
eigi keypt skip nje gert það út. Kári Sölmundarson varð t.
a. m. að fá skip hjá Skeggja bónda í frasvík á Katanesi
til þess að kómast til Islands; liklega hefur það eigi gengið
greitt, þvi að þeir urðu síðbúnir. Skeggi hefur einnig orðið
að fá Kára menn á skipið, eða gera það út eptir þörfum; er
líklegt að skipverjar hafi ætlað að fara kaupferð til íslands,
þótt eigi sje neitt um það getið, en að Kári hafi orðið að
greiða Skeggja bónda töluvert fje fyrir farið og útgerð hans.
Ef þeir hefðu eigi brotið skip sitt við ísland, er liklegt að
skipverjar hefðu farið flestir hið næsta sumar aptur til
Kata-ness eða Skotlands, en Kári einn og ef til vill örfáir menn
með honum orðið eptir á íslandi. Þetta hefði farið líkt eins

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Mon Dec 11 18:04:54 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/safnsogu/4/0672.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free