Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
706
FERÐIR, SIGL1NGA.R OG SAMGÖNGUR.
um ófarar. Hann fór utan um sumarið og týndist við
Fær-eyjar.1)
Um 1002 kom skip norður við Tjörnes. Það áttu
þrænsk-irmenn; hjet annar Pórður en hinn Sigurður. feir vistuðust
á Mýri og fóru til Noregs sumarið eptir, er þeir höfðu selt
varning sinn og fengið hann borgaðan. Menn þessir úr
Þránd-heimi eru tvisvar í sögunni nefndir Austmenn.2)
Tveimur eða þremur árum síðar er getið þriggja skipa
á Austurlandi. Eitt þeirra kom í Breiðavík og stýrðu því
Austmenn tveir, Gunnar og 3?ormóður. Peir vistuðust hjá
Katli þrym í Njarðvík og þar vá Gunnar Þiðranda Geitisson.
Það var óhappaverk mikið, og gerðist af því saga nokkur af
Gunnari á Islandi. Þormóður fjelagi hans var veginn, en
sjálfur komst hann undan, enda var hann manna vaskastur.
Að lokum segir sagan, að hann væri sendur til Guðrúnar
0-svifrsdóttur til halds og trausts, og kom hún eða JÞorkell
Eyjólfsson honum utan. Þetta hefur liklega gerst á árunum
um 1004—1006.3)
Annað skip kom í Krossavík, er áttu »norrænir menn«,
»Austmenn« (um 1005), og vistaðist stýrimaður hjá 3?orkeli
Geitissyni og þrir menn með honum.4) friðja skipið stóð þá
uppi i Hornafirði og er stýrimaður þess nefndur Þorkell.
Hann flutti utan Grím Droplaugarson og komu þeir í Sogn;
virðist hann hafa átt þar heima og Gunnar Þiðrandabani
einnig eða þar i næstu sveitum; þó eru orð sögunnar mjög
óákveðin um þetta.5)
Um 1006 kom skip í Gufárós og áttu norrænir menn.
Prir þeirra fengu veturvist að Borg hjá Þorsteini Egilssyni,
og fór Björn Arngeirsson utan með þeim sumarið eptir.6)
Það sumar (likl. 1007) kom skip af Noregi snemma sumars í
Straumfjörð. Kaupmenn þessir ætluðu að fara tvívegis og
tókst þeim það, en urðu siðbúnir; keypti Þórður
Kolbeins-son hlut i skipi þeirra og fór með þeim. Arið eptir komu
þeir út í Gufárós.7)
Helgi, Austmaður nokkur, kom út i Einarshöfn (um 1007
eða litlu síðar) og fór upp í hjerað með varning sinn. I
») Gunnl, 5/212, 5-7/217-221; Lax. 51/197. 2) Liósv.
8/138-140. 9) Gunnl. s. 2/198, 3/200-201 o. ef.; Lax. 69/252—255; Dropl.
14/173. ■■) Dropl. 14/172. 6) Dropl. 14/173. 6) Bjarn. 2/4-6.
’) Bjarn. 3/6, 3/9.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>