Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
SÖGUÖLDIN.
707
þeirri ferð barðist hann við Porgils örrabeinsstjúp og fjell.
Tveimur árum síðar komu út tveir bræður Helga, Einar og
Sigurður, og vildu hefna hans. En af því að þeir voru
góðir drengir, sættust þeir við I’orgils og tóku bætur, og
fóru síðan utan.1)
í Eyjafirði var kaupskip (um 1009 til 1010) og á því
norrænir menn og íslenskir (Böðvar Sigmundarson og Bessi
Hallason). Stýrimaðurinn hjet Hávarður og var hann
Aust-maður. Hann fjell um veturinn með þeim Böðvari.2)
Eitthvað tveim vetrum siðar komHelgi Arnsteinsson
á skipi sinu út i Eyjafjörð (um 1012). Hann var farmaður
mikill og var ávalt með Guðmundi hinum rika, er hann var
út hjer, segir sagan. Bendir það á, að hann hafi opt komið til
landsins. Hann var með Guðmundi um veturinn og átti kaup
við menn. Einn þeirra var Pórir Akrakarl, er ljet hann fá
svikna vöru. Seldi hann mál það í hendur Guðmundi rika
og fór síðan utan. í öðru handriti, broti af Ljósvetninga
sögu, er formaður þessi nefndur Ingjaldur, en svikalómurinn
Þorgils með auknefninu Akrakarl, af þvi að hann bjó að
Okrum í Hörgárdal; vörur hans voru eptir þvi, sem segir í
sögubrotinu, ull og klyppingar og hvorttveggja fúið, en eigi
feldur með raufum á, eins og segir í sjálfri sögunni. Annars
segir likt af svikum Akrakarlsins í báðum handritunum.
Ingjaldur er nefndur Austmaður, en eigi er þess getið að
hann hafi verið optar á ferðinni, en í þetta eina sinn.3) Eru
þessar missagnir eptirtektaverðar og hætt við að svo sje um
margt, sem engin gögn eru um til samanburðar.
Eyjólfur nef, þrænskur maður, mun hafa komið til
Is-lands 1012. Skip hans stóð uppi í Hornafirði vorið 1013, þá
er Flosi skyldi fara utan og þeir brennumenn. Hann bað sjer
konu í Bjarnanesi í Hornafirði, þar sem hann hafði
vetur-setu; seldi hann því Flosa skip sitt fyrir landið í
Borgar-höfn, svo að hann gæti reist bú; fekk Flosi og af
»Aust-manninumí tuttugu hundruð vöru í kaupinu.4)
Um 1014 stóð skip uppi í Norðurá í Borgarfirði og áttu
Austmenn; þeir bjuggust þá utan um sumarið og fór
Þor-geir Hávarsson með þeim.5)
’) Fló. 34/159—160. 2) Y.-Ljót. 5/176-183. 3) Ljósv. 13/161—
162, sbr. 258. 4) Nj. 149/848-850. 6) Fóst. 8/25, 8/27—28; Grett.
27/103-106.
42*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>