Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
814 ferðir, sigl1nga.r og samgöngur.
sigldu með. Ámundi hefur eflaust verið norskur, þótt eigi
sje þess beinlínis getið, og mestöll skipshöfn þeirra norsk.
Sumarið eptir reið Ari til alþingis og hafði nær 30
Aust-manna í flokki sínum; hefur þar verið Ámundi stýrimaöur
og aðrir skipverjar þeirra. Liklega hefur Ámundi verið tvo
vetur á Islandi eins og Ari, og farið utan 1165 (sjá að fr.
bls. 751—52). *)
Um 1172—1176 var ófriður eða fjandskapur allmikill
milli Islendinga og Norðmanna; ófriður þessi er fyrir löngu
að mestu leyti ókunnur, því að engin saga er af honum, og
hafa menn þvi á vorum dögum eigi gefið honum þann gaum,
sem vert er.
Tveir menn eru þó nefndir, sem áttu allmikinn þátt i
fjandskap þessum. Annar þeirra var norrænn, Páll
aust-maður, en hinn islenzkur, Helgi Skaptason, bóndi
og prestur í Saurbæ á Kjalarnesi.
Upptökin að ófrið þessum eru ókunn, en að hann var
byrjaður 1172, má sjá af brjefi Eysteins erkibiskups, er hann
ritaði 1173 til biskupanna á Islandi, höfðingjanna og allrar
alþýðu. Þar minnist erkibiskup á ófrið þennan og býður
ís-lendingum að leiðrjetta það, sem þeir hafi afgjört við
kon-unginn og landslýð hans, þótt margir verði að bæta það,
sem fáir hafi misgjört. Af þessu má sjá, að skærur hafa
verið með Norðmönnum og Islendingum árið áður, því að
annars hefði erkibiskup tæplega vitað um þær og ritað svo;
það má vera að þær hafi byrjaö fyr, því að liklega mun
Páll austmaður hafa komið t.il Islands 1171.
í þessu sama brjefi ræður erkibiskup til þess að fresta
eigi biskupskosningu i staðinn fyrir Klæng biskup, sem var
þrotinn að móð og mátt, og láta biskupsefnið koma utan að
sumri (1174). Porlákur Þórhallsson var þá kosinn til
bisk-ups af Klængi biskupi á alþingi, sem fyr er sagt, en þótt
erkibiskup hefði beðið um, að hann kæmi þá til Noregs,
»vildu menn eigi að hann færi utan, fyrir sakir ófriðar þess,
er þá var millum Noregs og íslands, er málum var ósett
þeim er gerðst höfðu landa millum af vígum og
fjárupptekt-um«, og fór hann því eigi utan fyr en þremur árum síðar, og
n Guöm. 8., Bps. I, 411-412, 416; Sturl. I, 125.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>